Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Page 426
424
Árbók Háskóla íslands
Samstarf við félagsvísindadeild
Kennsla í námsráðgjöf hófst við félags-
vísindadeild Háskólans árið 1990. Námsráð-
gjafar frá NHÍ hafa frá upphafi tekið þátt í
kennslunni og mótun hennar. Þeir hafa átt
sæti í námsnefnd, tekið að sér stundakennslu,
og nemendur í námsráðgjöf hafa frá upphafi
tekið hluta eða jafnvel alla starfsþjálfun sína
hjá NHÍ. Allt frá 1997 hefur verið samningur
á milli NHÍ og félagsvísindadeildar um
starfsþjálfim nemenda, þar sem allir nemend-
ur taka a. m. k. 125 stundir af starfsþjálfun
sinni í NHI, og a. m. k. 4-5 nemendur á ári
taka alla þjálfun sína þar. Allir nemendur,
sem stunda nám í námsráðgjöf stíga því sín
fyrstu skref í að tengja fræðilegt nám við
starfsvettvang hjá NHI.
Kynningarmál
NHÍ hefur allt frá upphafi tekið virkan
þátt í kynningarstarfi Háskóla íslands.
Starfsfólk NHÍ skipulagði og sá að miklum
hluta um námskynningar H. í., svokallað
Opið hús. Fulltrúi NHÍ átti sæti í Kynningar-
nefnd Háskólans. Námsráðgjafar skólans
ritstýrðu handbók Háskóla íslands um árabil,
en henni var dreift til nýnema í upphafi há-
skólanáms.
í tilefni af fimmtán ára afmæli NHÍ árið
1996 var gefinn út veglegur kynningarbækl-
ingur um námsráðgjöf við Háskóla íslands.
Námsráðgjöf gerði myndband um námsval,
sem ætlað var þeim, sem hugðu á nám við
Háskólann. Einnig stóð NHÍ að útgáfu hand-
bókarinnar Nám á Islandi, sem gefin var út af
Kynningarnefnd háskólaráðs og Bóksölu
stúdenta. Allt frá stofnun NHÍ hafa námsráð-
gjafar kynnt námsfyrirkomulag og námsfram-
b°ð Háskólans í framhaldsskólum á höfuð-
borgarsvæðinu og úti á landsbyggðinni. Full-
trúi Námsráðgjafar á sæti í nefnd, sem skipu-
leggur árlega námskynningu Háskóla íslands.
Nemendaráðgjöf
NFlí setti á laggirnar í samstarfi við Stúd-
entaráð H. í. svokallaða nemendaráðgjöf árið
1991. Nemendaráðgjöf er einskonar jafn-
ingjaráðgjöf, þar sem nemendur lengra
komnir í námi leiðbeina nýnemum um ýmis
mál, sem tengjast námi þeirra við skólann.
Þeir veita þeim upplýsingar um áherslur í
einstökum námskeiðum og hafa milligöngu
um hagsmunamál, kvartanir og hvert nem-
endur eiga að snúa sér í réttindamálum.
Nemendaráðgjafar voru einnig fúlltrúar
námsgreina sinna á árlegum námskynningar-
degi Háskólans.
Erlent samstarf
Allt frá fyrstu tíð hefur NHÍ lagt áherslu á
að fylgjast með því helsta, sem er að gerast i
faginu á alþjóðavettvangi. Námsráðgjafar
hafa tekið þátt í mörgum samvinnuverkefn-
um, sótt fundi og námsstefnur og einnig
heimsótt erlenda háskóla. Auk þess hafa er-
lendir starfsfélagar sótt NHj heim.
Frá 1981 til 1997 naut NHÍ liðsinnis dr.
Carol Pazandak, prófessors frá háskólanum 1
Minnesota í Bandaríkjunum, við þjálfun
starfsfólks og við uppbyggingu starfseminn-
ar. Árið 1995 vann dr. Sue Kroeger frá náms-
ráðgjöfinni í háskólanum í Minnesota í sam-
starfi við NHÍ að þróun stuðningskerfis við
fatlaða háskólanemendur. Sama ár kom
einnig dr. Kevin Nutter frá háskólanum 1
Minnesota og leiðbeindi námsráðgjöfum
varðandi hópráðgjöf við áhugasviðsgrem-
ingu.
Námsráðgjafar hafa tekið þátt í mörgum Evr-
ópuverkefnum í samstarfi við Leonardó skru-
stofuna á íslandi. Fyrsta verkefnið, sem NH
var aðili að, var Ráðgjöf við fullorðna, °S
síðan má nefna verkefnin Gæðastaðlar í rað-
gjöf, Samband háskóla og atvinnulífs og
Spiderweb.
NHÍ hefur verið aðili að fjöIþjóðlcgurn
samstarfsverkefnum um aðgengi fatlaðra a
háskólanámi bæði meðal Evrópuþjóða og 3
Norðurlöndunum. Þar má nefna HELION
sem var Evrópuverkefni um að kortleggj3
samhæfa úrræði fyrir fatlaða, HEAG, ver
efni, sem ljármagnað varafEvrópusamban
inu og Nordnett, sem Qármagnað var J
Nordplus. NHÍ hefúr einnig um árabil teki
þátt í norrænu samstarfi innan NUAS.
Arnfríður Ólafsdóttm