Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Page 473
471
jjannsóknar- oq þjónustustofnanir
uPptöku þeirra úr fæðunni. Nauðsynlegt er að
hafa þessar niðurstöður, þegar athugaðir eru
sjúkdómar, sem gætu stafað frá geislun; að
meta líkur á myndun krabbameins eða litninga-
breytinga. Einnig gætu slíkar rannsóknir orðið
niatvælaiðnaðitium fengur auk annarra. Ráð-
tnn var stúdent í sumarvinnu árið 1993 til að
sinna verkefninu, og hafa þessar mælingar
verið gerðar reglulega síðan. Helstu niður-
stöður eru, að ekki finnst óvenjuleg uppsöfnun
§eislavirku efnanna í Iíkömum íslendinga.
‘'hðurstöðumar eru mikilvægt viðmið íyrir
framtíðina, ef mengun geislavirkra efna eykst
af einhverjum ástæðum.
^jarlaekningar
Vorið 1997 var sótt um styrk til Fjar-
vtrkniáætlunar Evrópusambandsins (Tele-
'Tiatics), en þá hafði Þorgeir Pálsson, verk-
ræöingur, um nokkurra ára skeið fengist við
Jarlækningaverkefni. Sótt var urn styrkinn
asamt þátttakendum frá Ítalíu, Grikklandi,
Páni, Danmörku og íslandi. Styrkur fékkst
jýrir verkefni, sem kallað er Worldwide
tvtergency Telemedicine Service, skamm-
stafað WETS. Markmið þess var að koma á
®inurn samskiptagrunni fyrir bráðaþjónustu
yrir sérhvert farartæki í lofti, á láði og legi,
s- sjúkrabíla, þyrlur, flugvélar og skip.
ota átti mismunandi fjarskiptaleiðir og
siaðsetningartæki. Bráðaupplýsingarnar eins
°8 lífeðlisfræðilegar mælingar átti að senda
Urn Qarskiptaleiðir og hafa gagnvirk tölvu-
sarnskipti sömuleiðis. Þetta átti að veita not-
endum aðgang að heilbrigðisstofnunum og
uPplýsingum. Verkefnið fékk samtals 1.200
Pus. e\
islenski
evrur, sem svaraði til um 96 m. kr.
hlut
enskra. Af því komu 238 þús. evrur í
jstands, þ. e. um 19 m. kr. I verkefninu vai
a 1 samstarf við Póst og síma, Landhelgis-
8*sluna og nokkrar útgerðir frakt- og fiski-
'Pa- Verkefninu var stjórnað frá Ítalíu, en
erkefnisstjóri fyrir íslands hönd var Þorgeir
a sson, verkfræðingur á Eðlisfræði- og
'*knideild Landspítala.
Þórður Helgason.
Rannsóknastofa í meinafræði
Rannsóknastofa Háskólans í meinafræði
við Barónsstíg 1989-1994
Starfsmenn
Forstöðulæknir var Jónas Hallgrímsson,
prófessor; yfirlæknar voru Hannes Blöndal,
prófessor; Jóhannes Björnsson, dósent (til
1990) og Gunnlaugur Geirsson, prófessor (frá
1990). Heimiluð stöðugildi á þessum árum
voru samtals um 56, og í þeim störfuðu nálægt
80 manns. Lítil mannaskipti urðu og lítil
fjölgun starfsmanna. Eftir stéttum skiptust
starfsmenn þannig: yfirlæknar 3, sérfræðing-
ar (læknar) 10, aðstoðarlæknar 3, kerfisfræð-
ingur 1, líffræðingar 12, meinatæknar 24,
skrifstofumenn 11, bókavörður 1, rannsókn-
armenn 12 og starfsmenn við ræstingu 4.
Kennsla
Formleg tengsl við Háskóla Islands eru
þau, að 3 starfsmenn eru prófessorar í fúllu
starfi við læknadeild, 4 dósentar í hlutastarfi
við læknadeild og einn dósent í hlutastarfi
við tannlæknadeild. Auk þess annast nokkrir
aðrir starfsmenn stundakennslu í ýmsum
námsbrautum Háskóla Islands, hjúkrunar-
námsbraut Háskólans á Akureyri og við
meinatæknibraut Tækniskóla Islands.
Rannsókna- og fræðastörf
Hér vísast í ritið Rannsóknir við Háskóla
íslands og ritaskrár í Árbókum H. í.
Húsnæði
Starfsemi Rannsóknastofú Háskólans í
meinafræði (RH) er í 5 byggingum. Þrjár
þessara bygginga eru á Landspítalalóð í hús-
unum 7, 8 og 14, taugameinafræði er í
Læknagarði neðan Hringbrautar og hluti rétt-
arlæknisfræði er í leiguhúsnæði læknadeildar
í Ármúla 30. Dreifing starfseminnar er mjög
bagaleg frá rekstrarsjónarmiði. Vonir um
nýbyggingu fyrir rannsóknardeildir lækna-
deildar og Landspítalans hafa enn brugðist,
þrátt fyrir áætlanir og þarfir.
Starfssvið
Starfssvið eru 6, en innan þeirra eru undir-
svið, sem sum gætu í verið sjálfstæð. Til hag-
ræðingar í rekstri hefur starfsemi verið skipt í
5 skorir: 1) ritaramiðstöð (420), 2) líffæra-