Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Síða 528
526
Árbók Háskóla íslands
Annað
Uttekt var gerð á framleiðslu á tæknivör-
um fyrir sjávarútveg. Verkefnið var samstarfs-
verkefni Sjávarútvegsstofnunar, Félags ís-
lenskra iðnrekenda og Landssambands iðnað-
armanna. Unnið var að úttekt á hugsanlegri
þróun sjávarútvegs (1984-2000) með hliðsjón
af þeim breytingum, sem nú eru að verða.
Verkefnið tengdist norræna verkeíninu um
stjórn fiskveiða, markaðsþróun og úrvinnslu
fisks i sjávarbyggðum. Unnin var greinargerð
fyrir Samtök atvinnurekenda í sjávarútvegi
(SAS) um áhrif EES á íslenskan sjávarútveg.
Meistaranám í sjávarútvegsfræðum
Samkvæmt reglugerð er Sjávarútvegsstofn-
un ætlað að koma á kennslu og þjálfún í sjávar-
útvegsfræðum. Nefnd til að undirbúa meistara-
nám í sjávarútvegsfræðum við Háskóla íslands
var skipuð 17. nóvember 1992. Formaður
nefndarinnar var dr. Ragnar Árnason, prófess-
or í fiskihagfræði. Niðurstöðum undirbúnings-
starfsins var skilað í árslok 1993, og þann 17.
febrúar 1994 samþykkti háskólaráð tillögur
nefndarinnar. Helstu markmið námsins eru að
veita vandaða hagnýta og fræðilega menntun til
starfa á hinum ýmsu sviðum sjávarútvegs og
stoðgreina hans og í öðru lagi að veita með
náminu góðan undirbúning að frekara háskóla-
námi, m. a. doktorsnámi. Um er að ræða
tveggja ára þverfaglegt og rannsóknartengt
nám, opið þeim, sem þegar hafa lokið íyrstu
háskólagráðu eða hafa sambærilega menntun.
Námið skiptist í þrjá hluta, kjarna, sem nemur
20 einingum (e), sérsvið 10-20e og rannsókna-
verkefni 20-30e. Námið byggir að uppistöðu til
á námskeiðum, sem þegar eru kennd við Há-
skólann, en nokkur ný námskeið þarf að búa til.
Haustið 1994 hófú fyrstu tveir nemendumir
meistaranám í sjávarútvegsfræðum við Há-
skóla Islands. Enn þarf þó að renna styrkari
fjárhagslegum stoðum undir þennan þátt í
kennsluframboði H. í. Þá var unnið að því að fá
stöðu fiskifræðiprófessors við Háskóla íslands
og fékkst heimild fyrir henni á fjárlögum, og er
það mikilvægur áfangi fýrir Háskóla íslands.
Útgáfa
Ritið Hagsœld íhúfi er greinasafn um stjórn
fiskveiða og skyld efni eftir háskólanrenn. Það
kom út í framhaldi af málþingi, sem stofnunin
stóð fyrir 1989. Nárfisken svigter kom út 1991
í tengslum við verkefnið um stjórn fiskveiða,
Prófessor Örn D. Jónsson, forstöðunraður
Sjávarútvegsstofnunar.
markaðsþróun og úrvinnslu fisks í sjavar
byggðum. Essays on the Economics of Mic
ratoiy Fish Stocks var gefin út 1991, og er þa
ráðstefnurit um hagfræði flökkustofna. Bókm
Whales and Ethics er safn fyrirlestra, sern
haldnir voru á vegum Sjáyarútvegsstofnunar
tengslum við fúnd Alþjóðlega hvalveiðiráðsms
hér á landi 1991. Bókin Stjórn fiskveiða og
skiptingfiskveiðiarðsins hefur að geyma tinim
greinar, sem samdar voru fyrir samnefnda ra
stefnu, sem haldin var 1992. Samantekt u
þróun þeirra landsvæða á Norðurlöndum, sem
eru hvað háðust fiskveiðum, þ. e. ísland, Fær
eyjar, Grænland, Jótland og Norður-Noregu ■
kom út 1992. Bókin er á norðurlandamálum og
nefnist Fiskerinœringens hovedtrekk - kan ^
analyser, og er hún gefin út í samvinnu
NordRefo. Þá kom út lýsing á norræna sjava
útvegslíkaninu; Nordic Fisheries Uanag
ment Model - Comprehensive Descriph
gefin út í samvinnu við Norrænu raðll®rr
nefndina. Nordic Workshop on Predationrio ^
esses and Predation Models er samansafn LA
irlestra frá ráðstefnu, sem haldin var í Sty
hólmi 1993 um rándýr hafsins - ííölst0 þ£
rannsóknir og vistfræðilega aðferðarfræ >•
kom út lokaskýrsla um norræna sjávarutveg
líkanið, The Nordic Fisheries Manago'n
Model ~ Description and Experience, 1