Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Page 534
532
Árbók Háskóla íslands
vegna aldurs; Tómas starfaði þó áfram við af-
leysingar næstu árin. Á sama tíma réðst Val-
gerður Brynjólfsdóttir í starf á skrifstofu og
Stefán Friðgeirsson í starf næturvarðar. Sum-
arið 1994 var Rósa Þorsteinsdóttir ráðin til
þess að flokka og skrá þjóðfræðasafn Árna-
stofnunar, en 1997 varð hún skrifstofústjóri,
þegar Valgerður hætti. Svanhildur Gunnars-
dóttir var ráðin til þess að taka á móti gestum
á sýningar yfir sumarmánuðina 1995-1996,
og veturinn 1996-1997 var hún í hálfu starfi
sem safnakennari í því skyni að bæta þjón-
ustu stofnunarinnar við skólanemendur og
örva heimsóknir þeirra á handritasýningar.
Árið 1997 var dr. Guðrún Nordal ráðin sér-
fræðingur við Árnastofnun.
Samstarfsnefnd Árnastofnana
Samstarfsnefndin hélt aðeins tvo fúndi á
tímabilinu, í Kaupmannahöfn 1990 og f
Reykjavík 1991. Fulltrúar í nefndinni voru
Jón Samsonarson fyrir íslensku stofnunina
en Jonna Louis-Jensen fyrir þá dönsku.
Útgáfur
Á árunum 1990 til 1997 komu út eftirtald-
ar bækur í ritröðum Árnastofnunar:
Gripla VII—VIII, ritstjóri Jónas Kristjánsson,
1990 og 1993.
Grettisfœrsla. Safn ritgerða eftir Ólaf Hall-
dórsson, 1990.
Sigurðar saga þögla. Edited by Matthew
James Driscoll, 1992.
Magnúsarkver. The Writings of Magnús
Ólafsson of Laufás. By Anthony Faulkes,
1993.
The Icelandic Homily Book. Perg. 15 4° in the
Royal Library, Stockholm. Edited by Andrea
de Leeuw van Weenen, 1993.
Mattheus saga postula. Ólafur Halldórsson
bjó til prentunar, 1994.
Gyðinga saga. Edited by Kirsten Wolf, 1995.
Gripla IX, ritstjórar Guðvarður Már Gunn-
laugsson, Margrét Eggertsdóttir og Sverrir
Tómasson, 1995.
Gunnar Sveinsson. Bréf Gunnars Pálssonar
II. Athugasemdir og skýringar, 1997.
The Stoiy of Jonatas in Iceland. Edited by
Peter A. Jorgensen, 1997.
BRÉF
GUNNARS PÁLSSONAR
II. ATHUGASHMDIR
OG SKÝRINGAR
GUNNAR SVEINSSON
RC YKJAVlK
ÍTOFNUN ARNA MAUN'OSSONAR A ISLANDI
IV»7
Ráðstefnur
Starfsfólk Árnastofnunar stýrði frarn-
kvæmd níunda alþjóðlega fornsagnaþingsins
(The Ninth International Saga Conference),
sem haldið var á Akureyri 31. júlí til 6. ágúst
1994. Meginumræðuefni þingsins voru sam-
tíðarsögur, og voru fyrirlestrar 78. Árin
1994-1997 tóku starfsmenn Árnastofnunar
þátt í starfi í samvinnunefnd nokkurra nor-
rænna stofnana, sem fást við útgáfú fornra
texta eftir handritum (Netværk til elektronisk
behandling af nordiske middelalderhánd-
skrifter). Nefndin hafði það hlutverk aö
skoða þau not, sem hafa mætti af stafrænni
miðlun texta og mynda, og var hún styrkt at
NorFa. Danskt-íslenskt málþing um handrú
var haldið á vegum Árnastofnunar í hátíðar-
sal Háskóla íslands 19. og 20. júní 1997 í
efni af lokum afhendingar handrita til íslands
frá Danmörku. Fluttir voru 29 fyrirlestrar.
Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, var
verndari þingsins. Sáttmálasjóður styrkti
myndarlega íslandsferð starfsmanna dönsku
safnanna, sem hlut áttu að afhendingunni og
framkvæmd málþingsins.