Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Blaðsíða 542
540
Árbók Háskóla íslands
ingar undir yfirskriftinni ímyndíslands. Þing-
ið var haldið í tilefni af því, að 400 ár voru lið-
in frá því að rit Arngríms Jónssonar lærða,
Brevis commentarius de Islandia, kom út. I
upphafi ráðstefnunnar flutti Svavar Sig-
mundsson, dósent, ávarp og dr. Jakob Bene-
diktsson, fv. forstöðumaður Orðabókar Há-
skólans, erindi um Arngrím Jónsson. Aðrir
fyrirlesarar voru átta. Ráðstefnunni lauk með
pallborðsumræðum. Þá tók stofnunin þátt í
undirbúningi Níunda alþjóðlega fornsagna-
þingsins, sem fram fór í Verkmenntaskóian-
um á Akureyri dagana 31. júlí til 6. ágúst
1994, og tuttugasta þings International Asso-
ciation for Scandinavian Studies, sem haldið
var í Háskóla íslands dagana 7. til 12. ágúst
1994.
Á árlegu bókaþingi, sem fram fór í Gauta-
borg 27. til 30. október 1994, skipulagði
stofnunin dagskrá um miðlun fornbókmennta
undir yfirskriftinni Ár eddan endastfórskinn-
huvuden? Þeir, sem tóku þátt í dagskránni,
voru dr. Lars Lönnroth, prófessor við Gauta-
borgarháskóla, Kristinn Jóhannesson, sendi-
kennari, og HeimirPálsson, ritstjóri.
í tilefni af því að þrjú ný bindi komu út í rit-
safni dr. Sigurðar Nordals, gekkst stofnunin
fyrir dagskrá í Norræna húsinu 26. nóvember
1994. Þar fluttu dr. Jónas Kristjánsson, fv.
prófessor, dr. Gunnar Harðarson, lektor, og dr.
Gunnar Karlsson erindi um Sigurð, verk hans
og áhrif, og Þorleifur Hauksson las upp nr
áður óbirtum drögum að 2. bindi íslenskrar
menningar eftir Sigurð.
Bókaútgáfa
Stofnunin gaf út ritið Snorrastefnu árið
1992. Var það fyrsta útgáfurit stofnunarinnar.
Það hefur að geyma 19 íyrirlestra, sem fluttir
voru á Snorrastefnu, er stofnunin gekkst fyrir
1990, og einn að auki. Úlfar Bragason
ritstýrði verkinu.
Arið 1993 kom út Halldórsstefna, rit
Stofnunar Sigurðar Nordals 2. Bókin hefúrað
geyma þrjú ávörp og 15 fyrirlestra, sem flutt-
ir voru á Halldórsstefnu 1992. Elín Bára
Magnúsdóttir og Úlfar Bragason ritstýrðu.
Fyrsta bókin í flokki smárita stofnunarinn-
ar, Ímyndíslands, kom út á árinu 1994. í bók-
inni eru 9 erindi, sem flutt voru á ráðstefnu
með sama heiti, sem Norræna húsið og stofn-
unin héldu 1993. Ritstjórar smáritsins voru
Elín Bára Magnúsdóttir og ÚlfarBragason, en
Svavar Sigmundsson skrifaði formála.
Menningarkynning
Stofnunin styrkti íslenska menningar-
kynningu, Die Islander kommen, sem fram
fór í Köln í Þýskalandi og nágrenni hennar í
maí 1990 og árlega norræna menningarhátíð í
Normandí í Frakklandi á árunum 1992 til
1994.
Menntamálaráðuneytið skipaði forstöðu-
mann stofnunarinnar í starfshóp til að gera til-
lögur um með h vaða hætti skyldi minnast 750.
ártíðar Snorra Sturlusonar 23. september
1991. í framhaldi af því var hann skipaður í
framkvæmdanefnd vegna Snorrahátíðar, sem
haldin var í Háskólabíói á dánardægri Snorra.
íslenskunámskeið
Síðan 1989 hafa Stofnun Sigurðar Nordals
og heimspekideild Háskólans gengist fyrir
fjögurra vikna alþjóðlegu sumarnámskeiði i
íslensku máli og menningu í júlímánuði ar
hvert. Námskeiðið hefúr verið haldið í Há-
skólanum, og hefur heimspekideild fengið
fjárveitingu til að borga kennurum, en stofn-
unin hefur séð um alla framkvæmd þess. Oft-
ast hafa kennarar í íslensku fyrir erlenda stúd-
enta við Háskólann sinnt kennslunni í 1S'
lensku máli, en fyrirlesararverið fengnirtil a
gera íslenskri sögu, samfélagsháttuni og
menningu skil. Forstöðumaður stofnunarinn-
ar hefúr verið námskeiðsstjóri. Að jafna 1
hafa rúmlega 30 manns frá Evrópu, Ameríku,
Asíu og Ástralíu sótt námskeiðið ár hvert, en
umsóknir hafa verið allt að þrisvar sinnum
fleiri. Nemarnir hafa greitt námskeiðsgjald og
ferða- og dvalarkostnað sinn.
Frá árinu 1992 hefur menntamálaráðuneyt-
ið stutt einn nemenda íslenskra sendikennara,
sem starfa utan Norðurlanda, til að taka þáú 1
sumarnámskeiðinu. Þá hefúr norræn sam-
starfsnefnd um styrkveitingar til náms- °fc
fræðimannaskipta við Eystrasaltsríkin stu
nokkra nemendur á námskeiðinu árlega.
í tengslum við Níunda alþjóðlega f°rn
sagnaþingið gekkst stofnunin fyrir tveggja
vikna námskeiði í íslensku máli og menmnfc
fyrir fræðimenn. Var námskeiðið haldið í a
skóla íslands síðustu vikurnar í júlí 19
Voru þátttakendur 16 frá 11 löndum.