Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Qupperneq 572
570
Árbók Háskóla íslands
VI. Rannsókna- og þróunarverkefni í
fjarskiptaverkfræði
Þróun aðferðar og smíði búnaðar til
gagnascndinga (fjargæslu) á „D-línu“
ISDN-símakerfisins, UMH 9607, 1996.
Starfslið: Sigfús Björnsson, Jón Bragi
Björgvinsson, Reynir Eyvindarson (LÍ). Sam-
starfsaðilar: Skyn ehf., Landssími íslands.
ISDN símakerfi landsins hefur stjórnlínu,
sem nefnist D-rás og er stafræn pakkarás
(tölvunet), sem nær um allt land. ISDN
kerfið þarf ekki nema 3-5% af flutningsgetu
rásarinnar til sinna þarfa. Verkefnið fólst í því
að nýta sér afgangsgetu (um 95%) stjórnlínu
ISDN símakerfis landsins til almennra
gagnasendinga. Þessi leið var seinna almennt
notuð til skeytasendinga fyrir greiðslukort.
Samskiptatilraunir með pakkatengdum
D-rásum (1996-1997). Starfslið: Jón Bragi
Björgvinsson, Hilmar Karlsson, Sverrir A.
Berg, Sigfús Björnsson, Reynir Eyvindarson
(LI). Samstarfsaðili: Landssími íslands (LÍ),
og hann fjármagnaði verkið.
1) Hilmar Karlsson. Hönnun og smíði pakka-
tengdra samskiptaeininga fyrír D-rás ISDN.
Verkefni til lokaprófs í rafmagnsverkfræði
i 997. Leiðbeinandi: Sigfús Björnsson.
2) Sverrir Á. Berg. Fjarmœlingar og gœsla í
raforkukerfum yfir almenna gagnanetið (X.25,
D-ISDN). Verkefni til lokaprófs í rafmagns-
verkfræði 1996. Leiðbeinandi: Sigíús Bjömsson.
Rannsóknir með framtíðar mótunartækni
í þráðlausum fjarskiptum (1996-1997),
COFDM/OFDM. Starfslið: Sigfus Björns-
s°n, Reynir Eyvindarson (LÍ) og sérfræð-
ingar á UMH. Samstarfsaðili: Landssími
Islands, sem fjármagnaði verkefnið.
Verkefnið fellur undir Samstarfssamning
Pósts og síma og Háskóla íslands, sept. 1996.
Rannsökuð er fræðilega og með tilraunum ný
margtíðni mótunartækni, sem líkur eru á að
valda muni straumhvörfum í þráðlausum
breiðbandskerfum framtíðarinnar. Vinna hef-
ur staðið yfir í eitt ár af þremur áætluðum,
1'jarskiptanet Gullnámu Happdrættis
Háskóla íslands (H. H. í.), UMH 9504,
1995. Starfslið: Sigfús Björnsson, Stefnir
Skúlason og Ásmundur Eiríksson. Samstarf:
H. H. I., IGT (Reno, Nevada), Prím ehf.
Verkefnið fólst í því að hanna lausn til
„öruggra samskipta miðlægs kjarna kerfis
við útstöðvar sínar um allt land yfir almanna-
símakerfi. Rekstur kerfa sem þessara
(„progressive gaming"), þar sem spilað er
m. a. um pott, sem í þessu tilfelli safnast í frá
öllu Iandinu og fellur samtímis á öllu landinu,
ef sleginn er, þekktist áður aðeins fyr'r
sérhönnuð einkanet.
Sérhæft tölvunet fyrir flokkahappdrætti
H. H. í. (1995-1997). Starfslið: Stefnjr
Skúlason, Ásmundur Eiríksson, Sigvaldi 0.
Jónsson, Bjarni Ragnarsson og Sigfus
Björnsson. Samstarfsaðilar: Happdrætti
Háskóla íslands (H.H.Í.), Prím ehf.,
hugbúnaður ef.
Verkefnið fólst í hönnun og uppbyggingu
miðlægs hugbúnaðar, söfnunarnets og not-
endabúnaðar fyrir Flokkahappdrætti H. H. I-
Verkið var unnið á UMH að því marki, að
unnt væri að prófa og sannreyna grunnþætti
kerfisins, en var síðan afhent samstarfs-
aðilunum Prím ehf. og BR hugbúnaði, sem
luku verkinu.
Kolbeinn Árnason, jarðeðlisfræðingur.
Fjarkönnun: Unnið var áfram að þeim verk-
efnum á sviði fjarkönnunarrannsókna hja
Upplýsinga- og merkjafræðistofu Háskólans,
sem hófust um og fyrir 1989 (sjá fyrn
Árbœkw). Þessum verkefnum má í stuttu máh
skipta í þrennt: Hugbúnaðargerð fýrir t|rj
vinnslu stafrænna myndgagna, þróun og smiði
fjarkönnunarbúnaðar (myndatökutækja) °S
loks prófanir og mælingar með þessum tækj-
um. Með stuðningi frá Rannsóknaráði ríkisins
(síðar RANNÍS) var komið upp tvenns konar
myndatökubúnaði hjá Upplýsinga- og merkja'
fræðistofu; annars vegar línuskanna til tö u
hitamynda og hins vegar fjölrása myndavé a
sýnilegu og nær innrauðu sviði. Hitaskanninn
er gríðarlega næmt tæki, og með honum er
hægt að mæla hitastigsmun, sem er innan vi
0,1 °C. Hann hefur verið notaður til þess
mæla og kortleggja varmageislun frá mörgum
helstu jarðhitasvæðum landsins. Fjölrasa
myndavélin, sem sett er saman úr fjórum sja
stæðum einingum, þar sem hægt er að ra
næmnisviði hverrar einingar með útskiptan
legum Ijóssíum, hefiir hins vegar verið notu
til mælinga á þéttleika og ástandi gróðurs
nokkrum verkefnum, sem og til þess að m*