Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Page 659
Myndasafn
Myndasafn
657
I 10. kafla þessarar bókar er starfsannáll
rannsóknar- og þjónustustofnana skólans
rakinn fyrir tímabilið 1991-1997 og stundum
öllu lengur eða allt frá 1989, því að slíkur
annáll var ekki í Árbókinni, sem kom út fyrir
árin 1989-1991. Á nokkrum stöðum í
iyrrnefndum kafla og annars staðar í bókinni
hefur verið skeytt inn myndum tengdum
urníjölluðu efni. Til þess að varðveita enn
frekar á þennan hátt sögu Háskólans, er bætt
hér við myndakafla eða myndaannáli. Rektor,
Alexander Jóhannessyni, var tamt að segja:
.,Hús eru til alls fyrst,“- og Alexander, rektor,
var mikill frumkvöðull húsbygginga fyrir
Háskólann á sinni tíð. Á því tímabili, sem hér
urn ræðir, bættust við háskólabyggingar, og
var sá atburður stærstur, að húsi
Þjóðarbókhlöðu var lokið og það tekið í
notkun. Um líkt leyti var hafin bygging
Náttúrufræðahúss, sem lengi hafði staðið til,
°8 meiriháttar viðgerð var gerð á Aðal-
hyggingu Háskólans og á Árnagarði. Þá var
stórhýsið Austurstræti 16 keypt, en það hýsti
Kcykjavíkur Apótek, sem var í eigu Há-
skólans. Og Háskólinn eignaðist Nýja Garð,
sem lagðist niður sem stúdentagarður og varð
hús fyrir vinnuherbergi kennara; bygging
stúdentagarða hélt hins vegar áfram á Skild-
inganeshólum. Snemma árið 1991 hafðiverk-
smiðjuhúsið Hagi við Hofsvallagötu verið
keypt, og á næstu misserum var byggt ofan á
húsið og það innréttað fyrir lyflafræði og
jarðvísindamenn. Til þess að átta sig betur á
þessum breytingum er hér sýnt yfirlit yfir
háskólasvæðið með myndum úr lofti, bæði i
upphafi og undir lok umrædds tímabils, auk
þess sem minnt er á einstaka byggingaratburði
með myndum. Sérstaklega er getið einnar
stofnunar, sem lagðist niður við framkvæmd-
imar eftir langa þjónustu við allar deildir
Háskólans, þ. e. Háskólabókasafnið; bóka-
safnið flutti í Þjóðarbókhlöðu, þegar hún var
opnuð 1994 og rann þar saman við Lands-
bókasafn, og úr því varð ný stofnun, Lands-
bókasafn-Háskólabókasafn. Fyrrum starfs-
svæði Háskólabókasafhsins var gert að skrif-
stofuhúsnæði og er nú mjög breytt, frá því
sem áður var. í myndaannálnum er kafli
helgaður þessum horfna vinnustað.
*915 - Melarnir í Reykjavík um 1915. Bárujárnsmannvirkið á myndinni var utan um tunnur af
er*síni og olíu, sem í þá daga var allt flutt inn á tunnum (ljósm. ókunnur).