Norðurljósið - 01.01.1970, Blaðsíða 86
86
NORÐURLJÓSIÐ
en nokkuð annað kenningu Falk-Rönne, að Jesús hafi gerzt upp-
reisnarmaður, en Júdas gert skyldu sína: að framselja hann.
Viðbrögð Júdasar virðast 'benda á skapheitan mann, er stjórnast
lætur meir af tilfinningum en rólegri íhugun. En þetta styður þá til-
gátu, sem fram er borin hér að framan, að Júdas hafi reiðzt og í
bræðikasti ákveðið að framselja Jesúm. Þessari ákvörðun breytir
hann ekki, jafnvel þótt Kristur sýni honum heiður og vináttu, gefi
honum tækifæri að sættast. Þetta leiðir til dauða þeirra beggja, og
Júdasi verður betra, „að ihann hefði aldrei fæðzt,“ eins og Kristur
sagði í áheyrn hans kvöldið áður.
Biblían geymir mörg dýrmæt fyrirheit, loforð frá Guði. Eitt þeirra
er þetta: „Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur,
svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu rang-
læti.“ (1. Jóh. 1. 9.) Júdas játaði synd sína, en ekki fyrir réttum
aðila. Æðstu prestar Gyðinga hvorki gátu né vildu fyrirgefa honum.
Þeim stóð alveg á sama um hann. Þótt Kristur væri umkringdur af
varðmönnum, hefði Júdas getað komizt svo í nánd við hann, að
hann hefði getað kallað til hans. Það höfðu tíu líkþráir menn eitt
sinn gert. Þeir hrópuðu til hans og sögðu: „Jesús, meistari, misk-
unna þú oss.“ Hann heyrði 'hróp þeirra og læknaði þá. Ég held, að
Drottinn Jesús sé svo miskunnsamur, að hann hefði fyrirgefið Júd-
asi, ef hann hefði hrópað til hans: „Jesús, meistari, ég drýgði synd,
er ég sveik þig, fyrirgefðu mér.“ Avarpsorðið, sem Jesús hafði not-
að, er Júdas kom til að framselja hann, var þetta: „Vinur, hví ertu
kominn hér?“ (Matt. 26. 50.) A vörum Jesú angar það af ilmi kær-
leikans, sem alla vill frelsa og fyrirgefa öllum, e/ þeir aðeins koma
til hans, játa syndir sínar og beiðast miskunnar hans. Það var nóg
náð í þessu eina orði handa sjálfum Júdasi, ef hann hefði komið í
nánd við Jesúm og hrópað til hans. En í stað þess steig hann ógæfu-
sporið, sem aldrei verður afturkallað, að svipta sjálfan sig lífi.
Sé nú þessi skýring rétt, að Júdas hafi í reiðikasti svikið Jesúm,
þá er athöfn hans mynd af því, sem ritað stendur í Orðskviðum
Salómós: „Bráðlyndur maður drýgir marga synd.“ Enn segir sama
bók: „Stilling afstýrir stórum glappaskotum.“ Allir munu vita, að
það er slæmt að reiðast og missa stjórn á sér. Hins vegar mun flest-
um hulið, hve hættulegt það er, að reiðast og missa stjórn á sér, ef
til vill bæði í orði og athöfn.
Sú saga er sögð frá Færeyjum, að í Þórshöfn var mjög uppstökk-