Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.2004, Page 109

Tímarit lögfræðinga - 01.03.2004, Page 109
uðum talið frá brottfarardegi11.202 Þá má segja að frítímaslysatrygging feli í sér hlutlæga takmörkun á ábyrgð félagsins þar sem hún gildir aðeins í frítíma slysa- tryggðs.203 Skilmálaákvæðin eru vissulega háð hegðun vátryggðs og þess sem tryggður er, en ekki með þeim hætti að ábyrgð félagsins velti í raun á því hvort þeir hafa sýnt af sér forsvaranlega hegðun eða sök. Hér á landi hefur verið talið að skilmálaákvæði þess efnis, að vátrygging falli niður við eigendaskipti að vátryggðum mun, feli í sér hlutlæga takmörkun á ábyrgð félagsins. Má flokka slíka ábyrgðartakmörkun sem takmörkun á gild- istíma vátryggingar. Fær sú niðurstaða stoð í ákvæðum 2. mgr. 54. gr. VSL þó að ekki hafi verið til þeirrar greinar vísað í eftirfarandi dómi: Dómur Hæstaréttar íslands 23. október 2003 í málinu nr. 157/2003 í vátryggingarskilmálum vátryggingafélagsins F fyrir húftryggingu fiskiskips var kveðið á um að vátryggingin félli niður ef eigendaskipti yrðu að skipinu eða það sett undir aðra útgerðarstjóm. Eigendur einkahlutafélagsins Ú, sem átti skipið, seldu allt hlutafé í Ú til annars aðila og létu þá jafnframt af trúnaðarstörfum fyrir Ú. Skipið fórst nokkrum dögum síðar. f dómi Hæstaréttar segir að húftryggingin hafí verið fengin til að verja hagsmuni Ú sem atvinnufynrtækis og að ekki hafi staðið lagaskylda til að taka hana. F hafí verið í sjálfsvald sett hvort það yrði við ósk Ú um að húftryggja skip- ið og við þá ákvörðun hlyti F, sem endranær, að hafa lagt mat á viðsemjanda sinn, enda mátti F ekki standa á sama hver ætti þar hlut að máli. Þá segir í dóminum að með framangreindum ráðstöfunum hafi skipið verið sett undir aðra útgerðarstjóm í skiln- ingi umrædds skilmálaákvæðis. Þar sem samþykkis F hafi ekki verið aflað fyrir því að húftryggingin yrði látin standa óröskuð af þessari breytingu og þar sem skilmála- ákvæðið stangaðist ekki á við ófrávíkjanlega lagareglu, sbr. 3. gr. VSL, yrði að fallast á með F að tryggingin hefði fallið úr gildi sama dag og hlutafé í Ú var selt. F var því sýknað af kröfu Ú um greiðslu húftryggingarbóta vegna skipsins. Hér getur vissulega vaknað spumingin um hversu mikil tengsl megi vera á milli tímamarksins annars vegar og hegðunar vátryggðs hins vegar, áður en talið verður að það heyri undir ófrávíkjanlegar reglur VSL. Hér er erfitt að gefa algilda reglu, en með hliðsjón af því sem áður er komið fram má telja eðlilegt að skýra skilmálaákvæði, sem gera tímamarkið háð sök vátryggðs af einum eða öðrum toga (eða þeirra sem hann verður að þola samsömun með), með hliðsjón af ófrávíkjanlegum reglum VSL. Hér verður eftir sem áður að hafa í huga, að þrátt fyrir að ekki sé kveðið á um það berum orðum í skilmálum að gáleysi vá- tryggðs (eða annarra) leiði til þess að félagið losni úr ábyrgð, þá geta slík ákvæði haft að geyma „dulbúnar hegðunarreglur“. I skilmálum húftryggingar ökutækja er jafnan kveðið á um að félagið bæti ekki tjón sem verður á ökutæk- inu þepar ökumaður þess hafði ekki gilt ökuskírteini fyrir ökutækið og notkun þess. Akvæði þetta er jafnan talið varúðarregla í skilningi 51. gr. VSL þannig 202 Tilvitnunin er úr skilmálum fjölskyldutryggingar hjá íslensku vátryggingafélagi. 203 Sorensen. (2002), bls. 391. 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.