Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 52

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 52
52 NÁMSMAT Í HÖNDUM KENNARA stefnumótunar námsmats í grunnskólum. Í öðrum flokknum, Námsmat og nemendur, eru sjö spurningar um endurgjöf og hlutverk nemenda í námsmati. Í þriðja flokknum, Markmið og matsaðferðir, eru átta spurningar í nokkrum liðum um áherslur kennara við að skipuleggja námsmatið. Jafnframt er spurt um megináherslur þeirra og náms- matsaðferðir þeirra á skólaárinu. Spurningarnar eru byggðar að meginhluta á flokkun Stiggins og Conklin (Stiggins, 2001) á markmiðum og þá þeim matsaðferðum sem að áliti Stiggins (2001) eru líklegar til að höfða til kennara. Í fjórða flokknum, Vitnisburður námsmats, eru þrjár spurningar í nokkrum liðum um form vitnisburðar og helstu þætti sem kennarar miða við í umsögnum um námsárangurinn. Einnig er þarna spurning um matsaðferðir og almenna matsþætti sem geta haft áhrif á einkunnagjöf svarenda. Spurningar um matsaðferðir og almenna þætti í einkunnagjöf kennara eru byggðar að hluta til á rannsókn McMillan (2001) og McMillan og Nash (2000). Í listanum eru spurningar um bakgrunn svarenda síðast nema þær sem lúta að ákveðnum flokki spurninga. Spurningarnar í könnuninni eru flestar lokaðar en tvær eru opnar. Í undirbúningsvinnunni var gerð forkönnun til að fá ábendingar um þau atriði sem betur máttu fara, t.d. um spurningar, orðanotkun og afmörkun efnisþátta á spurn- ingalistanum. Í þessu skyni var spurningalistinn forprófaður af kennurum sem voru ekki í úrtakinu. Að lokinni forprófun var farið yfir ábendingar sem fram komu og spurningalistinn yfirfarinn og endurskoðaður með hliðsjón af þeim. Spurningalistinn var einnig lesinn af þremur kennurum á grunn- og framhaldsskólastigi og leiðsögu- kennara sem gáfu ráð um innihald, uppbyggingu og útlit hans. Gagnasöfnun og úrvinnsla Um miðjan nóvember 2003 var haft samband við stjórnendur skólanna með tölvu- pósti til að kynna verkefnið og óskað eftir leyfi til að leggja rannsóknina fyrir alla kennara skólans. Nokkrum dögum síðar var haft samband símleiðis við alla skólana til að kanna hvort stjórnendur væru tilbúnir að leggja könnunina fyrir kennara skól- ans. Flestir stjórnendur tóku vel í beiðnina en tveir þeirra neituðu alfarið að leggja könnunina fyrir kennara. Þá náðist ekki samband við einn skóla þar sem starfsemi hans lá niðri. Fáeinir skólastjórnendur báðu um að fá að leggja spurningalistana fyrir kennara að loknu jólaleyfi og var orðið við ósk þeirra. Í staðinn fyrir þá skóla sem neituðu þátttöku og skólans sem náðist ekki samband við voru valdir skólar af sömu stærð og úr sama kjördæmi. Skólar sem komu næst þeim í röðinni voru valdir og sam- þykktu stjórnendur tveggja að leggja spurningalistann fyrir kennara. Þriðja skólann þurfti að velja aftur vegna þess að ekki fékkst svar frá skólastjórnanda um þátttöku þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Sá skóli sem var næst honum að stærð var því valinn og fékkst leyfi hjá stjórnanda hans til að leggja spurningalistann fyrir. Söfnun gagna lauk því ekki fyrr en í byrjun mars 2004. Við úrvinnslu voru gögn flokkuð eftir rannsóknarspurningu og þeim efnisþáttum sem lágu til grundvallar: stefnu skóla, markmiðum og matsaðferðum og vitnisburði kennara. Greining gagna er að meginhluta lýsandi og við úrvinnslu gagnanna voru tíðnitöflur skoðaðar en við útreikninga og samanburð var notað ki-kvaðratpróf til að skoða hvort svör þátttakenda tengdust starfsreynslu, stærð skólanna eða aldurstigi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.