Helgafell - 01.09.1944, Page 152
310
HELGAFELL
ur úr plasti og léttmálmum, eru vissulega í
þann veginn að koma fram. En eins verður
um hann og koptann, að lengra mun líða frá
ófriðarlokum, unz hann birtist alskapaður, en
menn hafa leiðzt til að trúa. Ef bæði fram-
leiðendur og kaupendur hafa ráð á að bíða í
hálft þriðja ár frá því að friður hefur verið sam-
inn munu fyrstu bílarnir í sýningarskálunum
eflaust bera mörg einkenni gerbreytinganna,
sem rætt hefur verið um. Iðjuhöldarnir hafa
lýst því yfir afdráttarlaust, að þeir vilji heldur
senda gerðina frá 1942 óbreytta á markaðinn
sex mánuðum eftir ófriðarlok en taká á sig
hættu af átján mánaða töf.
Óskabíllinn mun smám saman nálgast vatns-
dropalagið fyrirhugaða á nokkrum árum. Bíl-
iðjuhöldarnir hyggja ekki á ncina skyndibreyt-
ingu, né heldur að bjóða kaupendum óskabíl-
inn fullbúinn á tilteknu ári. Hver árgangur
mun eins og að undanförnu, verða að ein-
hverju Ieyti bættur og breyttur frá því sem
áður var. Eftir fimm cða sex eða kannski tíu
ár frá ófriðarlokum verður óskabíllinn loks á
boðstólum í allri sinni dýrð.
Það hefur verið gróin venja í iðnaði að
halda aftur af nýjungum, en miðla smám sam-
an af þeim í hverjum nýjum árgangi. Á
þennan hátt hefur tekizt að halda við stöð-
ugri eftirspurn eftir nýjum bílum. Það er al-
kunnugt leyndarmál, að setið hefur verið á
mörgum umbótum, þangað til gróðavænlegt
þótti að láta þær almenningi í té. Lítil ástæða
er að vænta breytinga á þessu. Jafnvel þó að
bílasmiðirnir viti, hvernig á að smíða breytt-
an bíl og betri og hafi allt til þess, kjósa þeir
fremur að láta hann þróast ár frá ári — nema
ný samkeppni knýi þá til að taka nýja stefnu.
í rauninni er erfitt að gera sér ljóst, hve
mikið af opinberum tilkynningum iðjuhöld-
anna er gabb og gerviþoka og hve mik-
ið er sannleikur. Raunverulegar fyrirætlanir
þeirra eru vandlega geymdar, og vel má vera,
að þeir lumi á einhverju óvæntu í handrað-
anum. En hvort það kemur í dagsljósið tveim
árum eða tíu eftir ófriðarlok, hvort það birtist
allt í einu eða smám saman, hvort það verða
gömlu bíljöfrarnir eða einhverjir nýgræðing-
ar, sem hleypa því af stokkunum, þá er víst,
að okkur mun auðnast, áður en við göngum
fyrir ætternisstapa, að aka í miklu betri bíl-
um en þekktust fyrir ófriðinn.
Reynum að gera okkur í hugarlund, hvern-
ig óskabíllinn mun verða álitum, þar sem
hann stendur hjá koptanum í skýli sínu við
nýja, samsetta húsið. Það mun fyrst vekja at-
hygli, hve allar línur eru mjúkar. Sennilega
verður hann þó ekki með „straumlínulagi",
eins og tíðkaðist á flugvélum fyrir ófriðinn.
„Líklegra er“, segir kunnur verkfræðingur,
„að hann líkist meir vel gerðum áætlunar-
bíl. Ein ástæðan til þessa verður ljós um leið
og komið er inn í bílinn. Hann mun verða
miklu rýmri en áður tíðkaðist. Þetta aukna
rými stafar fyrst og fremst af gagngerðri
breytingu á gerð bílsins. Vélin er í afturend-
anum. Meginhlutinn af því rúmi, sem vélin
tók áður, bætist nú við farþegarúmið. Áður
var óþægilegur hryggur yfir drifskaftinu eft-
ir endilöngu gólfinu, en hann hverfur, af því
að vélin er aftur í. Ef til vill verður tengið
sjálfvirkt. Jafnvel fyrir styrjöldina var farið að
nota slík tengi í ýmsum tegundum bíla og
gafst vel.
Okkur mun geðjast vel, hvernig sætum
verður hagað. Bílameistarar hugsa sér að víkja
frá venju um skipun þeirra og haga þeim líkt
og gerist í litlum svefnvögnum með legu-
bekkjum.
Bíllinn mun verða hálfu léttari en nú ger-
ist. Kemur það af því, hve mikið er notað af
plasti og alúmi, en styrkleiki er þó stzt minni.
Fleiri kosti mun hann þó hafa að bera, svo
sem loftræstitæki til þess að hreinsa loftið og
halda því hæfilega svölu. Hjólhringirnir munu
samsvara Iéttleika bílsins og gera hann þýðari
og mýkri í gangi. Þá virðist það víst, að benzín-
eyðslan verði miklu minni. Hefur því jafn-
vel verið haldið fram, að tvöfalda megi þá
vegalengd, sem hver lítri endist, með því að
nota flugvélabenzín, en líklegra er þó, að það
verði haft aðeins til blöndunar. Aftur á móti
er fullvíst, að séð verður fyrir víðari útsýn úr
bílnum með stærri gluggum og vörn gegn of-
birtu með geislahverfu gleri. Bílar framtíð-
arinnar verða í stuttu máli auðveldari í með-
förum, öruggari á hraðri ferð og á beygj-