Helgafell - 01.09.1944, Blaðsíða 218
376
HELGAFELL
Sigrid Undset segir frá
Sigrid Undset: HEIM TIL FRAMTÍÐ-
ARINNAR. Kristmann Guðmundsson ísl.
— Víkingsútg. 1944. 148 bls. Verð: kr.
18-.
Bók þessi segir frá hernámi Noregs vorið 1940
og flótta 'skáldkonunnar til Svíþjóðar, og virðist
vera rituð ekki löngu seinna, því að hún ber
nokkur merki hins norræna taugaáfalls, sem
kallað hefur verið Finnagaldur. Skammirnar, er
skáldkonan sendir Stalín og Rússum, eru hvorki
betri né verri, bókmenntalega skoðað, en önn-
ur áþekk skrif um það efni, sem einu sinni
þótti svo einstaklega vinsælt og vænlegt til
frama. En á þessum stað virðist galdurinn vera
nokkuð út í hött og utan við textann.
Heim til jramtibarinnar er að vísu nokkuð
takmörkuð heimild um innrás Þjóðverja í Nor-
eg, en það sem hún nær, gefur hún allgóða
hugmynd um öngþveitið, sem ríkir í landi, sem
er óviðbúið innrás stórþjóðar, er hefur undir-
búið allt af djöfullegum fláttskap. Þrátt fyr-
ir undrun manna í fyrstu virðist ekki hafa bor-
ið á þeirri skelfingu og lömun sálarlífsins, er
einkenndi frönsku þjóðina seinna um vorið. Það
lýsir vel skaplyndi Norðmanna, er Undset seg-
ir, að margir karlmenn hafi skrifað konum sín-
um á þessa leið: ,,Það er betra að berjast barn-
anna vegna, jafnvel þótt ég falli, sem ég vona
að verði ekki, því ef ég lifi, hverju á ég þá
að svara þeim, er þau vaxa upp, og spyrja:
Hvað hafðist þú að, pabbi, þegar Þjóðverjar
gerðu innrásina í Noreg 1940?“ Norðmenn höfðu
fyrr barizt við höfuðskepnurnar með berum
höndum og verjulausir og töldu ekki eftir sér
að verjast vélknúnum villidýrum í sextíu daga,
til þess eins að þurfa ekki að roðna við spurn-
ingunni: ,,Hvar varst þú, pabbi?“
Athyglisverðasti kaflinn í bók Sigrid Undset
er lokakafli hennar — Heim til framtíðarinnar.
Höfundurinn ræðir þar um þýzka vandamálið,
og þær hugleiðingar eru sérstaklega tímabærar
þessa stundina, þegar óðum líður að leikslok-
um styrjaldarinnar. Aðfarir þýzka hersins í öll-
um hernumdum löndum hafa verið með þeim
ódæmum, að menn hljóta á nýjan leik að
leggja fyrir sig þá spurningu, hvort þetta stafi
eingöngu af tíu ára drottnun nazista í landinu
og uppeldisaðferðum, eða hvort hér komi í Ijós
brjálsemikennt sálarlíf heillar þjóðar, sem eigi
djúpar rætur í kynþættinum. Sigrid Undset hall-
ast eindregið að síðari skoðuninni, og er henni
það satt að segja ekki láandi. Þjóð, sem hefur
í 400 ár ekki lifað aðrar sigursælar byltingar en
gagnbyltingar, hlýtur að verða hlaðin andlegum
og pólitískum lýtum og kvellisóttum. Og
þjóð, sem aldrei hefur getað komið á mann-
sæmandi ,,nýrri skipan“ í heimahúsum sínum
hlýtur að freistast til ráðsmennsku í híbýl-
um nágranna sinna. Það skal ósagt látið, hvort
þýzku þjóðinni tekst á þeim tímum, sem nú
fara í hönd, að afplána syndir og glæpi for-
tíðarinnar með stórfelldu sögulegu átaki. En
hitt er víst, að Rómaför iðrunarinnar verður löng
og erfið. Og það er ekki að undra, þótt Sig-
rid Undset hrjósi hugur við framtíðarhorfum
mannkynsins, er hún hugsar til hins tryllta, en
réttláta haturs, er nálega allar þjóðir heims bera
til Þýzkalands og alls, sem þýzkt er. Harmleik-
ur þýzku þjóðarinnar eftir þetta stríð verður
ekki fólginn í því, að herir hennar verði strá-
felldir og sigraðir og borgir hennar í rústum.
Harmleikur hennar verður fólginn í einangrun
hennar í heiminum. Árum saman mun Þýzka-
landi verða formælt af hinum hernumdu og
kúguðu þjóðum Evrópu, árum saman munu
Þjóðverjar verða sniðgengnir eins og líkþráir
menn. Soltnir og göngumóðir þýzkir ,,farfuglar“
með landabréf og myndavél munu hvergi verða
hýstir í þeim löndum Evrópu, sem troðin hafa
verið þýzkum hermannafótum. Menn munu
hata mikið í Evrópu eftir þetta stríð. Þess
vegna verður Þýzkaland mesta vandamál nán-
ustu framtíðar, og þar verður vandinn mestur
að ráða svo fram úr málum, að hatur hinna
undirokuðu þjóða verði ekki Evrópu að fjör-
tjóni, og eins hitt, að bænaróp Þjóðverja um
vægð og miskunn verði þeim ekki skálkaskjól
til þess að búast í næstu herför um Evrópu.
Sigrid Undset býður ekki í bók sinni neina lausn
á þessu máli, en það eitt er lofsvert, að hún
hefur bent á það.
Sverrir Kristjánsson.
Sigrid Undset: HAMINGJUDAGAR
HEIMA í NOREGI. Brynjólfur Sveinsson
ísl. P. H. J., Ak. 1943. 240 bls. Verð:
kr. 28,80; 38—; 40—.
Sigrid Undset, hin fræga norska skáldkona,
er ein meðal margra rithöfunda nútímans, sem
nazisminn hefur rekið í útlegð og flúið hefur
land sitt og álfu. Hún átti heima rétt hjá
Lille Hammer í Guðbrandsdal í Noregi, en átt-
hagar hennar urðu vígstöðvar, þegar Þjóðverjar