Helgafell


Helgafell - 01.09.1944, Side 221

Helgafell - 01.09.1944, Side 221
BÓKMENNTIR 379 húsmæðraskólum eða hliðstæðum menntastofn- unum. Til þess er víða farið of fljótt yfir sögu. Einkum virðist mér kaflinn um heilsusamlega lifnaðarhætti og heilsuvernd vera alltof stuttur og veigalítill. T. d. eyðir höfundur ekki öllu meira en 3 bls. samtals til að ræða um húsa- kynni, salerni, húsgögn og rúmfatnað. Þar er ekki minnst á, hversu búið skuli um frárennsli, ekki minnst á eldhúsvaska eða kröfur þær, er gera verður til góðra eldhúsa, og er þó eld- húsið ekki lítill liður í hollustuháttum hvers heimilis. Þá vil ég drepa á kaflann, þar sem rætt er um erfðir. A bls. 18 eru taldir upp ýmsir sjúk- dómar, er höfundur telur arfgenga. Eru taldar þar upp 40 erfðaveilur, og má búast við, að mörgum lesanda lítist ekki á blikuna, því að höfundur slær hér enga varnagla. Sannleikur- inn er sá, að dæmi eru til í einstökum ættum, að sýna megi fram á arfgengi þeirra kvilla og sjúkdómseinkenna, sem upp eru talin, en það er fráleitt að segja svo frá, sem þetta sé sönnuð regla. Til skýringar má geta þess t. d., að hægt er að sýna fram á arfgengi meðfœddrar hjarta- bilunar (lokugalla) stöku sinnum, en langsam- lega mestur hluti hjartabilunar er alls ekki arf- gengur, heldur áunninn, þ. e. til orðinn fyrir ýmsa sjúkdóma, svo sem liðagigt o. fl. Tauga- veiklun er talin arfgeng af höfundi. Þar gegnir sama máli. Taugaveiklun er mjög breytileg, og alls ekki unnt að telja hana arfgenga yfirleitt. Hitt mundi sönnu nær að segja, að lífið sjálft, barátta einstaklingsins við umhverfið og við- skiptin við annað fólk, þar með talið uppeldið, eigi enn meiri þátt í ,,taugaveiklun“ nútíma- mannsins en nokkuð annað. Sjúkdómshneigð erfist vafalaust oft, en það er alls ekki víst, að hún geri vart við sig, nema því aðeins, að ytri atvik í lífinu séu slík, að þau laði hana fram, eða skapi henni jarðveg. Myndirnar í bókinni eru flestar góðar og gefa henni mjög aukið gildi. Eru þær í rauninni ómetanlegar, lesandanum til glöggvunar á text- anum. Rétt er þó að benda á, að myndin á bls. 121 gefur ranga hugmynd um, hvar heilaköng- ullinn er. Sýnir hún hann alltof framarlega. Hann ætti að vera upp undan eyranu aftan til. Þótt hér hafi verið að ýmsu fundið, er heild- ardómurinn sá um þessa bók, að hún sé hús- mæðrum ótvírætt til mjög mikils gagns, og er þar bætt á myndarlegan hátt úr brýnni þörf. Jóhann Sœmundsson. Jón Þorsteinsson: VAXTARRÆKT. Reykjavík 1944. 79 bls. Verð: kr. 10—. Bók Jóns Þorsteinssonar, Vaxtarrœ\t, lætur !ítið yfir sér, en ég held, að hún sé ein af góðu bókunum. Hún er að vísu ekkert spenn- andi skemmtilestur, og ekki rekur mig minni til þess, að hún væri auglýst sem bezta jóla- bókin; en hún er þrauthugsaður árangur margra ára starfs. Jón Þorsteinsson hefur í mörg ár kennt ung- lingum, með vaxtarskekkjur á hrygg, góðan líkamsburð, auk almennrar leikfimikennslu. Veit hann eins og aðrir, sem við slík störf fást, að því fyrr sem næst til unglinganna, því vænlegar horfir um árangur, en allra bezt er að koma í veg fyrir skekkjurnar, enda er það æði oft hægt. Sumum skekkjum er að vísu þannig farið, að ekki verður komið í veg fyrir þær. Stund- um verða þær heldur ekki lagaðar, þykir gott að geta haldið þeim í horfinu, svo að ekki skekkist meira og hrekkur þó ekki ævinlega til. Hæfir þar sín meðferðin hverri skekkju. Um það mál fjallar bókin ekki, hún á ekki að vera kennslubók í sjúkraleikfimi. Áhugamál höfundar er að gera allan lands- lýð keikan, og ætlunarverk bókarinnar er að kenna nokkrar óbrotnar æfingar, sem stæla hrygg og herðar, og hægt er að hafa um hönd í heimahúsum, skólum og vinnustöðvum. Get- ur hver og einn gert þær eftir sinni getu og hentugleikum. Fyrr meir lögðu menn mikla stund á líkams- rækt, síðar gleymdist hún, unz augu manna hafa tekið að opnast fyrir því á síðustu áratugum, að ekki muni horfa til farsældar að vanrækja líkamann vegna andlegheitanna einna. íþróttahreyfingunni hefur aukizt hér mjög fylgi á síðustu árum, og líkamsæfingar eru nú skyldugreinar í flestum eða öllum skólum. Enn vantar samt mikið á, að líkamanum sé gert eins hátt undir höfði og sálinni, og verður það kannski lengst af svo hjá okkar bókvísu þjóð. I skólum mun líkamsæfingum að jafnaði ætl- aðar tvær stundir á viku. Það þýðir raunveru- lega 30—40 mínútur þriðja og fjórða hvern dag. Það er auðvitað betra en ekki neitt, en samt öldungis ófullnægjandi, ætti að vera á- líka tími daglega. Líkamsæfingar í einhverri mynd eru nauð- synlegar öllum þeim, sem kyrrsetur hafa. Það er ekki eðli mannskepnunnar að sitja alla sína ævi. Mönnum, sem vinna í sæti sínu, ætti að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238
Side 239
Side 240
Side 241
Side 242
Side 243
Side 244
Side 245
Side 246
Side 247
Side 248
Side 249
Side 250
Side 251
Side 252

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.