Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Page 18

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Page 18
Tímarit Máls og menningar Það er margt líkt með skyldum, og Popper eru gífuryrði alltöm ekki síður en Maó oddvita, eins og þeir vita sem gluggað hafa í bækur beggja. Það þarf því ekki að koma á óvart þegar hann rýkur upp til handa og fóta andspænis róttækustu gagnrýni kenninga sinna sem fram hefur komið og kallar gagnrýnandann hatursmann skynseminnar, postula forheimskunar- innar eða eitthvað í þá veru. Gagnrýnandinn sem fær svo kaldar kveðjur úr herbúðum Poppers og lærisveina hans er Thomas S. Kuhn, prófessor í Princeton. Gagnrýni hans birtist fyrst í lítilli bók sem hann lét frá sér fara árið 1962 og nefndi Innviði vísindalegra byltinga.1'’ Síðan hafa orðið hinar áköfustu rökræður um efni og kenningu þeirrar bókar á ýmsum vett- vangi, meðal annars í bókinni Gagnrýni og viðgangur vísindanna, útgef- inni árið 1970 af þeim Imre Lakatos og Alan Musgrave.18 Thomas S. Kuhn er eins og Popper eðlisfræðingur að mennt, en sér- grein hans að lokinni skólagöngu var upphaflega síður heimspeki vísind- anna en saga þeirra. Höfuðrit hans um sögulegt efni fjallar um Kóper- níkus og er prýðilegt framlag til vísindasögu.19 Þessi fræðigrein Kuhns, vísindasaga, er næsta ný af nálinni sem sjálf- stæð fræðigrein. En áður en til urðu fyrsm kennarastólar í vísindasögu á okkar dögum höfðu menn auðvitað lagt smnd á sögu fræða og vísinda í meira en tvö þúsund ár. Flest rit Aristótelesar, sem eru ýmist kennslubæk- ur eða handrit að fyrirlestrum, hefjast á sögulegu yfirliti um eldri kenn- ingar sem hann síðan vinzar úr áður en hann semr fram hina réttu kenn- ingu þar sem ýmisleg brot úr hinum eldri kenningum, sem voru honum þókknanleg, eiga sér hvert sinn stað. Og þessum hætti hefur allur þorri höfunda kennslubóka og margra annarra fræðirita fylgt til þessa dags. Þannig höfum við smám saman eignazt drög að sögu vísindanna frá upp- hafi til okkar daga, og við þessi drög hafa sagnfræðingar smðzt þegar þeir hafa viljað geta vísindanna að nokkru í hinum almennari söguritum. Frá þeirri vísindasöguritun sem nú er lýst hafa verið fáeinar undantekningar. En þær hafa aðeins verið undantekningar allt fram á síðustu þrjá eða fjóra áratugi. Þegar undantekningin varð að reglu kom eitt og annað í ljós sem áður var hulið. Kannski má segja, fruntalega sem fyrr, að hin eldri vísindasaga hafi reynzt vera umfangsmikil sögufölsun í smáu og stóru, með áþekkum hætti og stjórnmálasaga alræðisríkja sem valdhafar breyta eftir geðþótta sínum. Og þó, hún er kannski sambærilegri við þá stjórnmálasögu Islend- 256
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.