Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Page 51

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Page 51
Káta Lovísa Hildebrandts borgarleikara, sem var rómuð fyrir söng. Aðrir í nefndinni voru: Hildebrandt sjálfur, Witznagel meðdómari, ungur málari, auk Al- freðs Láutners, og eru þá ótaldir nokkrir stúdentar sem meðdómarinn hafði grafið upp til að sýna negradans. Viku eftir að Amra tók ákvörðun sína kom umrædd nefnd saman til fundar í Keisarastræti, einmitt í litlu notalegu setustofunni hennar frú Ömru. Þykkt teppi huldi gólfið og þarna var arinn sem svolítið hafði verið lagt í. Auk þess var þarna sófi með mörgum sessum, stofupálmi, enskir hægindastólar leðurfóðraðir og mahóníborð með bjúgrenndum fómm, þar sem stóðu diskar með smurðu brauði, fagurlega skreyttu, tvær belgvíðar sérríflöskur ásamt glösum. Amra sat í sófanum í skugga pálmans, skorðuð innan um sessurnar, og hafði krosslagt fæturna um knén. Hún var fögur eins og hlý sumarnótt. Treyjan hennar var úr ljósu þunnu silki, en pilsið var þykkt úr dökku, stórrósóttu efni. Við og við strauk hún kastaníubrúnt hárið upp frá lágu enninu. — Söngkonan frú Hildebrandt sat einnig í sóf- anum við hlið hennar. Hún var rauðhærð og í reiðfötum. Andspænis kon- unum sátu karlmennirnir í þéttum hálfhring, þar á meðal málflutnings- maðurinn, sem hafði fundið sér lágan leðurkoll og var fram úr máta vand- ræðalegur á svipinn. Stöku sinnum varp hann öndinni þyngslalega og kyngdi, líkt og hann ætti við þráláta ógleði að stríða... Alfreð Láutner hafði afþakkað stól og hallaði sér makindalega upp að arninum. Hann var í tennisfötum, sérlega fríður, vel á sig kominn og frísklegur; þóttist alltof óþolinmóður til að geta setið kyrr. Herra Hildebrandt talaði um ensk ljóðlög hljómfagurri röddu. Hann var ákaflega sterkbyggður maður, rómverskur í andliti og öruggur í fram- komu, klæddur vönduðum, dökkum jakkafötum. Hann var leikari að mennt og bjó yfir afar traustri þekkingu og fáguðum smekk. I vinahópi hafði hann miklar mætur á að kveða upp dóma yfir Ibsen, Zola og Tolstoj, sem að hans mati fylgdu allir sömu fráleitu stefnunni. I dag lét hann svo lítið að ræða um hversdagsleg málefni. „Þekkið þið, heiðursfólk, kostulegt ljóð sem heitir „That’s Maria!“?“ sagði hann... „Það er svolítið tvírætt, en rækalli skondið. Auk þess eru vitanlega hin frægu...“ Hann taldi upp nokkur ljóð sem menn samþykktu og frú Hildebrandt féllst á að syngja. - Unga málaranum, sem var axla- siginn með ljósan hökutopp, var falið að leika töframann, en sjálfur ætlaði Hildebrandt að annast kynningu frægra manna... I stuttu máli, allt féll 19 tmm 289
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.