Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Page 80
Tímarit Máls og menningar
Húðirnar og karlarnir sigldu síðan frítt.
Einn sveinn fjekk tíu þúsund og margir æti nýtt.
Þá úrskurð skyldi fella um landslög og rjett,
Var lögbók ekki spurð, heldur fundarmynd sett.
Og fjórar bitaskjóður úr flokknum skyldu tjá,
Hvort flokknum ekki þóknaðist lagabrot að sjá.
i '
Endalaust að ljúga og öllu að snúa við
Var afltaugin helzta í þeirra stjórnarsið.
Ef fólkið æpti: „Svei þjer!“ Þeir sigri lýstu dátt
Og sögðu: „Það var fagnaðaróp úr hverri átt! “
Og loksins fór svo þannig um bæði sala og sel,
Til sæmdar þeim var tekið eitt kveld í þeirra stjel.
Til heiðurs þeir fengu hjá fólkinu þá vörn:
Með fagnaðarópum það stakk þeim niðrí Tjörn.
Jafnframt skal greint hjer frá svolátandi sögu, sem sagt var að and-
arnir hefðu komið á lopt um jólaleytið. „Ráðherra gekk um gólf í skrif-
stofu sinni í stjórnarráðinu og var að raula sálm um dómsdaginn fyrir
munn sjer („Sól og tungl mun sortna hljóta“). Allt í einu brýnir hann
raustina og segir fjórum sinnum í drykklotu: „Dagur drottins mun koma
sem þjófur á nóttu“ og loks „Dagur drottins, minn dagur, skal koma sem
þjófur á nóttu“.
Fundir Eyfirðinga og Mýramanna
Um fundarsamþykktir í Eyjafjarðarsýslu, Mýrasýslu og á Akureyri út af
bankamálinu og símskeyti um fund Mýramanna og bæjarstjórnarkosning-
ar til Ritzau.
Eyfirðingar hjeldu fulltrúafund 24. janúar 1910 til þess að ræða um
aðfarir ráðherra í bankamálinu og samgöngumálinu. Fulltrúar voru mættir
úr öllum hreppum sýslunnar nema Olafsfjarðar og Saurbæjarhreppi. Þrjár
tillögur voru bornar upp á fundinum, en eftirfarandi tillaga í tveim liðum
var eptir símskeyti frá Akureyri samþykkt í einu hljóði:
1. Þar sem alþingi eitt hefir rétt til þess samkv. lögum að velja gæzlustjóra
Landsbankans og víkja þeim frá, en ráðherra hefir tekið sér þetta vald og þannig
gengið á rétt þingsins og framkvæmd þess á þann hátt, að lánstrausti og heiðri
318