Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Page 121

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Page 121
Hrafnkatla: sinnaskipti eða samfélagsskipan viðhorfa, hversu vel eða illa sem honum tókst að lifa eftir boðorðunum. Hrafnkell Freysgoði var ekki riddari, en að breyttu breytanda getur hið sama átt við hann. Að minni hyggju er Hrafnkels saga Freysgoða ekki kristin eða klerkleg siðfræðileg dæmisaga í sama skilningi og Hermann Pálsson leggur í orðin; eða öllu heldur tel ég ekki nauðsynlegt að gera ráð fyrir þessu til að kom- ast til skilnings á verkinu. Hermann miðar raunar að miklu leyti í hug- myndum sínum við það að sagan styðjist beinlínis við atburði úr samtíð höfundarins og að hún lýsi nokkurri bölsýni hans. Þetta kann rétt að vera, þótt það feli í sér næsta langan krók frá verkinu sjálfu; hvað sem um það er þá er það ekki til umræðu hér. Hins vegar verður ekki séð að slík reginbreyting verði á lífsviðhorfi og breytni Hrafnkels að um „endurfæðingu“ sé að ræða frá kristnu siðfræði- legu sjónarmiði og að saga hans geti þannig orðið að „dæmi“. Hermann Pálsson telur að Hrafnkell hafi „iðrazt“ eftir dráp Einars, sjá t. d. Tímarit Máls og menningar 1964, bls. 276. I sama riti segir Hermann: „Með niðurlægingu sinni hefur hann afplánað fyrir afbrot sín og verður annar og betri maður“ (bls. 283). Og í bók sinni, Siðfrœði Hrafnkels sögu, segir Hermann: „... sagan lætur ekki nægja að herma frá viðbrögðum manna við óförum Hrafnkels, heldur greinir hún frá þeim sinnaskiptum, sem hann varð fyrir sjálfur“ (bls. 90). Nú fer því fjarri að ég vilji hafna þeim röksemdum með öllu sem hér eru nefndar. Frekar mætti segja að spurt væri um áherzlur. Kaþólskir miðaldamenn lögðu ekki sömu áherzlu á ein- staklingssiðfræði og siðbótarmenn gerðu síðar. Eitt af deiluefnum kirkju- deildanna var hin einstaklingsbundna mannlega ábyrgð andspænis guð- dóminum. Miðaldakirkjan gerði fyllstu kröfur til þeirra sem voru „inn- vígðir“, til klerka og klausturfólks, en veitti almenningi í staðinn nokkurn „afslátt“ og var í þessu skyni soðin saman mikil fræðigrein í siðfræðinni. Hrafnkell hefur endurskoðað afstöðu sína og bætt breytni sína eins og fram gengur af sögunni sjálfri, en vafasamt er þó að um sé að ræða „endur- fæðingu” eða hrein „sinnaskipti" eins og Hermann virðist telja. Að nokkru leyti virðast mér skoðanir Hermanns hafa „litazt“ af sjónarmiðum sem telja má yngri en það menningarumhverfi sem sagan er sprottin úr. Ef um siðfræðilega dæmisögu væri að ræða í klerklegum stíl yrði að gera ráð fyrir því að Hrafnkell ynni eitthvert það verk sem á einhvern hátt miðaði beinlínis að aukinni dýrð Drottins og allra helzt að vegsemd 359
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.