Skírnir - 01.01.1947, Síða 122
120
Platón
Skírnir
hve ungur höfundur var. Af fjölmörgum leikritum hans
hafa aðeins ellefu varðveitzt (sennilega á að gizka fjórði
hluti), þar á,meðal „Skýin“, sem vitnað er til í „Samdrykkj-
unni“ og Varnarræðu Sókratesar. í leikriti þessu virðist
Aristofanes hafa dregið Sókrates í sama dilk og sófistana
og hafa hæðzt að honum sem alkunnum fulltrúa þeirrar
hreyfingar í borginni. Þrátt fyrir þá útreið, sem Sókrates
hafði fengið hjá Aristofanesi, virðist Platón hafa haft
fullan skilning á hæfileikum þessa mikla leikritaskálds.
Lýsing hans á Aristofanesi í „Samdrykkjunni“ er sönn
og rétt. Er ekki um að villast, að hér fer andríkur maður
og gáfað skáld. Allt, sem hann segir, er klætt fögrum og
myndauðgum búningi. Fyrir honum vakti að beita hvöss-
um brandi háðs síns til uppeldislegra áhrifa, ef verða
mætti, að hann fengi vakið þjóð sína til nýrra dáða.
6. Sókrates. Um hann er óþarft að fjölyrða, því að ætla
má, að hann muni lesendum kunnur. Sprottinn er hann
upp úr jarðvegi hinnar grísku upplýsingarstefnu, þó að
hann væri mikill andstæðingur sófistanna. Eins og þeir
gerði hann það að vísu að grundvallaratriði að hugsa
sjálfstætt og skipa sjálfstæðri hugsun ofar venjum og
arfgengum kennisetningum, en munurinn á honum og sóf-
istunum var sá, að hann hélt óbifanlega fast við þá sann-
færingu sína, að með þessari frjálsu og óháðu hugsun
hlytu menn að geta fundið algild sannindi. Er Sókrates
var dæmdur til lífláts árið 399 f. Kr. b„ sakaður um að
spilla æskulýð borgarinnar, mun hann hafa verið 70 ára
að aldri og eftir því fæddur 470/69. Var hann sonur mynd-
höggvarans Sofroniskosar og ljósmóðurinnar Fainaretu.
Nam hann í æsku handiðn föður síns, en drakk jafnframt
í sig hin fjölþættu menningaráhrif samtíðarinnar, þó að
hann legði ekki í eiginlegum skilningi stund á vísindalegt
nám. Kynni hans af kennsluaðferðum sófistanna vöktu
hjá honum þá sannfæringu, að starfsemi þeirra væri
háskaleg siðferði þjóðarinnar. Kom þar, að hann fann hjá
sér köllun til að prófa sjálfan sig og samborgara sína og
orka mannbætandi á alla, sem hann umgekkst.