Skírnir - 01.01.1947, Side 217
Skírnir
Bréf frá Kaupmannahöfn 1850
215
öðru máli að gegna, þegar maður vill læra einhverja
íþrótt, sem maður er náttúraður fyrir, einsog að mála út
af sögunum, sem menn munu þekkja, að mér muni mest
hafa verið náttúrlegt (en hitt fjarstætt). Það getur og
verið landinu til gagns og gamans (og sóma), ef það
skyldi takast, en hitt getur verið gott fyrir þá, sem það
vilja stunda (án þess að lasta það). En ef svo illa tæk-
ist, að eg yrði að fara heim, þá verður það að taka, sem
að höndum ber; en það vona eg, að enginn geti fyrirlitið
mig, þó fátækt hafi hamlað mér þessa fyrirtækis, sem
enginn mun geta lastað, og mundi eg standa jafnupprétt-
ur og segja sem gömlu Islendingar: meira hefði eg þurft
liðs en ámælis, því þettað er enginn velgjörningur og koma
ósvinnum eft[ir]ráðin illa í hag, en það get eg sagt, að
meira hefi eg séð en menn sjá heima á íslandi, og ekki
hefði eg sett saman stórt bú af þessum peningum. Það
mun og enginn geta kastað mér það í nasir, að eg hafi
brúkað mikla peninga að óþarfa eða til óskikkanlegheita.
Engan hlut hefi eg að sýna eftir mig, sem eg hefi teiknað,
því það eru ekki utan mælingar, og vill það eiga enginn,
og verður það að bíða til þess seinna.
Allir mennirnir á skipinu vóru mikið góðir við mig, en
þó er helzt að greina kapteininn, því hann einn veit eg
koma hingað í sumar, og hann vill alltaf vita, hvað mér
líður. Ekki get eg sent fleiri bréf að sinni, því eg hefi ekki
tíma, og verða menn að láta sér þetta nægja, en með kap-
tein Petursen vildi eg senda miða, ef eg gæti, og væri gott
að spurja hann um mig, því hann veit það hér um bil,
hverninn mér líður. Eg held að Gúðmann skrifi heim með
þessu skipi. Ekki ætla eg að biðja um önnur föt að sinni
en þrenna sokka, og þyrftu þeir að vera nokkuð stærri
en hinir, því eg hefi mikið stækkað. Ekki get eg meira sagt
í fréttum að sinni, því eg verð að flýta mér. Eg bið að
heilsa öllum frændum og vinum og einlæglega óskandi
þeim allrar blessunar og farsældar um tíma og eilífð.
Þinn elskandi son
Sigurður Guðmundsson.