Skírnir - 01.01.1947, Page 237
Skírnir
Skýrslur og reikningar
III
lagsins viðtakendur eyðublaðanna fyrir þá félaga, sem eru í um-
boði þeirra. A eyðublaðinu skal sjást til hverra embætta á að kjósa
og í hverra stað. Heimilt er félagsstjórn að gera uppástungur um
menn í forsetaembætti og fulltrúaráð. Svo skal og öðrum heimilt
að bera fram slíkar uppástungur, séu þær studdar og undirritaðar
af eigi færri en 25 félagsmönnum og kornnar í hendur kjörstjóra
eða forseta fyrir áramót. Skulu þær uppástungur stjórnar og fé-
lagsmanna greindar á eyðublaðinu; þar skal og standa beiðni frá
kjörstjóra um að kjósandinn fylli eyðurnar með nöfnum þeirra
manna, er hann vill kjósa, skrifi undir kjörseðilinn nafn sitt og
endursendi hann siðan lokaðan og frímerktan til kjörstjóra svo
snemma, að hann sé kominn í hendur honum fyrir lok aprílmán-
aðar. Kjörgengir í forsetaembætti og fulltrúaráð eru allir þeir fé-
lagsmenn, sem eiga heimili í Reykjavík eða nágrenni, og skal þess
getið á eyðublaðinu.
3. gr.
Fjórði málsliður síðari málsgreinar 17. gr. orðist svo: I annarri
viku maímánaðar kveður forseti fulltrúaráðið til fundar, o. s. frv.
4. gr.
Síðasti málsliður 17. gr. orðist svo: Hinn nýkosni forseti og hinir
nýkosnu fulltrúar taka við starfi sínu að loknum kjörfundi.
5. gr.
20. gr. orðist svo: Aðalfundur skal haldinn á ári hverju eigi síðar
en fyrir lok októbermánaðar. Skal birta dagskrá, fundarstað og
fundartima minnst viku fyrir fund í dagblöðum, sem koma lít í
Reykjavík, og í ríkisútvarpi. Ef lagabreytingar koma til umræðu
á fundinum, fer þó um fundarboðun sem segir í 27. gr.
6. gr.
27. gr. orðist svo: Tillögur um breyting á lögum þessum skulu
sendar forseta og vera komnar í hendur hans fyi'ir áramót. Leggur
forseti breytingartillögurnar fyrir aðalfund, og skulu þær liggja
frammi í þrjár vikur fyrir fundinn, félagsmönnum til sýnis, á þeim
stað, sem forseti tiltekur. Fundarstað og fundartíma skal forseti
birta minnst þrem vikum fyrir aðalfund (sbr. 20. gr.), og skal þess
getið í auglýsingunni, að lagabreytingar komi til umræðu og hvar
þær séu til sýnis. Þær breytingartillögur, sem aðalfundur samþykk-
ir, skal forseti leggja fyrir fulltrúaráð. Samþykki eigi færri en þrír
fulltrúanna tillögurnar, skulu þær bornar í heild sinni undir alls-
herjar-atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Félagsmenn greiði at-
kvæði með eða móti tillögum (já eða nei við hverri tillögu). Fái
tillögurnar meiri hluta greiddra atkvæða, verða þær að lögum við
næstu áramót.