Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2018, Side 92
94
milli dómara og kyns dómara út frá þessari greiningu en það er áhugavert
rannsóknarefni.
Meginþráður í niðurstöðum dómstóla í gegnum árin er mikil ábyrgð
sem lögð er á brotaþola. Greiningin sýnir að viðhorf dómara styður við
þær hugmyndir að börn, „góðar stelpur“ og „óspjallaðar“ geti hugsanlega
verið ósamþykkar kynlífi og geti því verið nauðgað. „Slæmar stelpur“,
eiginkonur, og þær sem stunda oft og reglulegt kynlíf með einum eða
fleiri, eru iðulega samþykkar, og þeim getur ekki verið nauðgað. Vernd
kvenna getur að þessu leyti takmarkast þegar konur geta ekki valið að vera
kynverur, en eru á sama tíma gerðar að erótísku viðfangi.58 Jákvætt er að
dregið hefur úr þolendaábyrgð, en hún er engu að síður til staðar þó erf
iðara sé að koma auga á hana nú en áður. Athyglisvert var að sjá hvernig
dró úr þolendaábyrgð þegar gerendur voru erlendir. Sjónarmið sem þar
gætu legið á bak við eru þær hugmyndir sem við gerum okkur upp um
hinn „dæmigerða nauðgara”. Þetta vekur upp þá spurningu hvort dóm
stólar telji sennilegra að konur frjósi og lamist af hræðslu þegar gerandi
er ókunnugur eða erlendur maður. Hér er um ákveðna birtingarmynd
valda og stöðumismunar í samfélagsgerðinni að ræða, þ.e. að brotaþolar
standi sterkar að vígi ef gerendur eru af erlendum uppruna. Ef til vill er
auðveldara fyrir dómstóla að leggja framburð brotaþola til grundvallar
þegar gerandi er erlendur þar sem það passar betur við ímyndina um að
nauðgarar séu öðruvísi en aðrir, eða hinir. Sömuleiðis má leiða að því
líkur að erfitt sé að halda uppi málsvörn á erlendu tungumáli með milli
göngu túlks. Í mars 2005 lýsti Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna
yfir áhyggjum sínum af ofbeldi gegn konum á Íslandi og þá sérstaklega af
kynferðisofbeldi. Var einkum kvartað yfir hversu fáar kærur til lögreglu
leiddu til ákæru og dómsmeðferðar. Walter Kälin, finnskur sérfræðingur
Mannréttindanefndarinnar, lét eftirfarandi orð falla: „Were all the women
lying or did authorities just not care? Was the message that women should
just not report the cases because they would only get into trouble?“59
Óhætt er að taka undir þau orð.
58 Catherine MacKinnon, „Feminism, Marxism, Method and State“, bls. 210.
59 Changes to Iceland’s penal code aimed at combating terrorism focus of debate in Human
Rights Committee, Sameinuðu þjóðirnar, fréttatilkynning 16. mars 2005, sótt 29.
mars 2018 af http://www.un.org/press/en/2005/hrct659.doc.htm.
Þórhildur og ÞorgErður