Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2018, Page 179
185
fengu konur og önnur fórnarlömb kynferðisofbeldis ekki sanngjarna máls-
meðferð hjá stofnunum – og þá eru stórfyrirtæki ekki undanskilin – svo þær
tóku í þjónustu sína nýtt verkfæri: internetið. Stjörnur hröpuðu af himni.
Þetta hefur reynst afar áhrifaríkt og vakið okkur rækilega til umhugsunar.
En hvað svo? Það er hægt að lagfæra réttarkerfið, ella gæti samfélagið látið
það lönd og leið. Stofnanir, fyrirtæki og vinnustaðir geta gert hreint fyrir
sínum dyrum, annars mega þau búast við að fleiri stjörnur hrapi og fjöld-
inn allur af smástirnum að auki.
Ef réttarkerfið er lagt til hliðar af því að það þykir ekki skilvirkt, hvað
tekur þá við? Hverjir munu þá miðla valdinu? Ekki verða það vondir fem-
ínistar eins og ég. Hvorki hægri né vinstri öflin kæra sig um okkur. Á öfga-
fullum tímum verða öfgamennirnir ofan á. Hugmyndafræði þeirra verður
að trúarbrögðum, litið er á hvern þann sem ekki bergmálar skoðanir þeirra
sem trúníðing, villutrúarmann eða svikara og hófsömum miðjumönnum er
tortímt. Skáld eru sérstaklega viðsjárverð því þau skrifa um mannfólk og
fólk er siðferðilega margrætt. Markmið hugmyndafræðinnar er að útrýma
margræðni.
Opna bréfið UBC Accountable er líka til marks um veilu – veilu hjá
Háskólanum í Bresku-Kólumbíu og í málsmeðferð hans. Borgara-
réttindasamtök í Bresku-Kólumbíu og á landsvísu hefðu átt að láta
málið til sín taka. Kannski taka þau við sér núna. Ekki síst af því að nú
er farið að tala um ritskoðun í tengslum við þetta bréf – það er kallað
eftir því að vefsíðunni verði eytt og með henni mörgum og ígrunduðum
orðum bréfritaranna – kannski kanadíski PEN-klúbburinn, alþjóðlegi
PEN-klúbburinn, Kanadísku blaðamannasamtökin um tjáningarfrelsi
(e. CJFE) og ritskoðunarvaktin (e. Index on Censorship) hafi líka eitthvað
um þetta að segja.
Í bréfinu sagði frá upphafi að UBC hefði brugðist bæði þeim ákærða
og kærendunum. Ég myndi bæta því við að háskólinn hefði brugðist
skattgreiðendum sem árlega leggja honum til um 600 milljónir dollara.
Við vildum gjarnan fá að vita hvernig fjármunum okkar var varið þarna.
Styrktaraðilar UBC – en háskólinn fær milljarða dollara í framlögum frá
einkaaðilum – eiga einnig rétt á að vita þetta.
Í þessu máli öllu hefur rithöfundum verið att saman, ekki síst með því
að afbaka efni bréfsins og ófrægja það sem stríð gegn konum. En nú skora
ég á alla – jafnt góða femínista og vonda femínista eins og sjálfa mig – að
láta af ófrjóu argaþrasi, taka höndum saman og beina kastljósinu þangað
Er ÉG VONdUr FEMÍNiSTi?