Úrval - 01.12.1945, Síða 127
ALEINN
125
vax fyrsta afrekið mitt um
langan tíma. En ekkert svar
kom úr norðri. Ég kveikti tvisv-
ar í drekanum. En enginn
árangur. Æsingurinn leið hjá
og ég riðaði á fótunum af
þreytu.
Þegar ég kom inn í kofann,
lagðist ég á bekkinn og féll í
órólegan svefn. Oft þóttist ég
heyra í skriðbeltum dráttarvél-
arinnar, en það voru aðeins
brestirnir í jöklinum. Um há-
degi fór ég út og hafði sjónauk-
ann með mér. En ég sá enga
hreyfingu.
Um kvöldið kallaði Charlie
Murphy æstur: „Poulter er
kominn 93 mílur, hann ætlar að
hafa það. Til hamingju Dick.
Láttu ljósin loga.“ Ég svaraði
ekki, því að ég óttaðist, að ég
myndi ofreyna mig, ef ég sneri
sveifinni á tækinu. Ég mátti
ekki láta bugast úr þessu. Ég
varð að tendra leiðarljósin.
Ég var kominn út klukkan
sex næsta morgun. Og beint í
norðri sá ég leitarljós lýsa beint
upp og hverfa síðan; svo birtist
það aftur og hvarf enn á ný.
Ég var óumræðilega hamingju-
samur. Ég hljóp að drekanum
með blys í hendinni, festi það
við rófuna á drekanum og kast-
aði honum 75 fetíloftupp.Blys-
ið logaði skært í fimm mínútur.
Og á meðan starðiégínorður.en
varð einskis vísari. Ég sat um
hálftíma í snjónum og beið. Ég
vissi að ég hafði séð ljós, en ég
var orðinn tortrygginn eftir öll
vonbrigðin. Ég varð að fá úr
þessu skorið, svo að ekki væri
um að villast. Ég hafði lifað
meiri óvissu en ég var fær um
að þola.
Þegar ég reyndi að rísa á
fætur, var mér allur máttur
þrotinn. Ég skreið að hleran-
um, rendi mér niður stigann
og skreiddist í fletið. Klukkan
átta sagði Charlie mér, að ekk-
ert hefði heyrst frá Poulter í
fjóra klukkutíma. Ég missti
hlustunartækið úr höndunum.
Mér féll allur ketill í eld. Ég
fekk hálfgert aðsvif, og þegar
ég náði mér aftur, lá ég hálfur
á bekknum og hálfur á gólfinu.
Þar sem mér var ljóst, að ég
yrði að hugsa um leiðarljósin,
dróst ég að stiganum. En ég
komst ekki nema upp í hann
miðjan. Ég þarfnaðist einhverr-
ar hressingar. Ég hafði eitt
sinn reynt áfengi í slíku tilfelli,
en það hafði haft hinar alvar-
legustu afleiðingar. í þetta
sinn fann ég hypofosfat með