Úrval - 01.10.1947, Blaðsíða 10
8
TJRVAL
um græna jarðargróðri um til-
búning hráefnisins — trénisins.
Með tilbúningi nylons höfrnn
við stigið feti lengra. Við byrj-
um ekki með tréni, heldur með
hráefni, sem jurtirnar búa trén-
ið til úr. Við höfum sem sé ekki
aðeins sagt silkiorminum upp
vistinni, heldur einnig jurtarík-
inu. Það er satt, þótt það sé
dálítið villandi, að nylon er búið
til úr kolum, lofti og vatni.
Köfnunarefnið, kolefnið, súr-
efnið og vatnsefnið, sem til þarf,
eru öll fengin úr þessum þrem
auðlindum, en þær verða að þola
margskonar meðferð áður en
þær ná að sameinast og mynda
hina dýrmætu nylonsameind.
Nylon er ekki eitt efni, heldur
heill hópur efna, sem eru til ótal
hluta nytsamleg. Það ræður
mestu um notagildi þess, að úr
því er hægt að búa til betri þráð
til vefnaðar og prjónaskapar en
úr nokkru öðru efni, náttúrlegu
eða tilbúnu. En það er einnig
hægt að búa til úr því betra
burstastrá en svínsburst, og í
mörgum tilfellum getur það
komið í staðinn fyrir plötuplast.
Þess má jafnvel vænta, að
með nýjum framförum verði
öllum vefnaði og prjónaskap til
fatnaðar hætt. Hlutverk þess-
ara tveggja iðngreina er að
framleiða skjólflíkur fyrir
mannslíkamann, en skjólgildi
þeirra byggist á því, að milli
þráðanna er mikið loftrými, sem
er slæmur hitaleiðari. Einnig er
þetta loftrými nauðsynlegt til
þess að öndun húðarinnar geti
farið óhindrað fram. Ef við get-
um búið til fataefni með loft-
rými án þess að nota jafnkostn-
aðarsama og fyrirhafnarmikla
aðferð og vefnað, mundi það
valda meiri byltingu í klæða- og
dúkagerð, heldur en varð þegar
vélarnar voru teknar í þjónustu
vefnaðariðnaðarins.
Það er ekki ósennilegt, að við
munum bráðum sjá plast- eða
nylonfataefni — ekki ofin,
heldur mótuð, og alsett loftgöt-
um') Gætt fjaðurmagni nylons-
ins mundi það fullnægja öllum
þeim kröfum, sem gerðar eru til
fataefnis.
Og nú skulum við snúa okk-
ur frá hinum hagnýtu vísindum
til hinna svonefndu „hreinvís-
inda.“ Þessum þætti vísindanna
hefir nýlega áskotnazt nokkur
tæki, sem leiða kunna í ljós
furðulega hluti um lífið og al-
1) Sjá „Byg-gt úr bólum", á kápu
2. heftis þ. á.