Úrval - 01.10.1947, Blaðsíða 51
ÁTTU VONT MEÐ SVEFN ?
49
tímum lendir þannig saman,
leiðir af því geðvonzku og
þrætur — oft alger samvistar-
slit. Skilnaður getur oft verið
meira kominn undir líkamshita
en lundarfari.
Kleitmann hefir engan frið
fyrir fólki, sem leitar ráða við
svefnleysi. „Það er ómögulegt
að gefa neitt algilt ráð,“ segir
hann. „Hver og einn verður að
gera það, sem hann hefir bezt
af.“
Ef þér finnst gott að gera
iíkamsæfingar undir svefninn,
þá skaltu gera þær. Ef þér geng-
ur betur að sofna við grammó-
fónmúsik, skaltu notfæra þér
það.
Ef þér verður gott af heitu
baði, skaltu fara í heitt bað
undir svefninn.
Ef öl gerir þig rólegan, skaltu
drekka flösku af öli svo sem
klukkustund fyrir háttatíma.
Ef bæn hjálpar þér, skaltu
einnig notfæra þér það.
„En taktu ekki inn svefnlyf,
án fyrirmæla læknis,“ aðvarar
Kleitman. „Þau eru hættuleg
og lækna ekki orsakir svefn-
leysis.“
Kleitman gefur ennfremur
eftirfarandi ráð, byggð á
margra ára reynslu:
1. Breyttu ekki háttbundnum
svefntíma. Flestir sofa betur, ef
þeir fara í háttinn á sama tíma
á kvöldin.
2. Reyndu að „slappa af.“
fyrir háttatíma. Svefnleysi
stafar oft af tilfinningaæsingi
eða andlegri áreynslu.
3. Sofðu einn í rúmi. Kleit-
man er ekki ókunnugt um þá
kenningu, að hjónarúmið sé
uppistaðan í góðu hjónabandi,
en nákvæmar rannsóknir benda
til þess, að maður sofi betur
einn í rúminu.
4. Ef þú sefur ekki vel, skaltu
reyna að fara að hátta klukku-
stundu fyrr en venjulega.
Athuganir Kleitmans leiddu í
ljós, að fólk, sem fór snemma
að sofa, svaf lengur og hafði
betri not af svefninum. Þeir,
sem fóru seinna að hátta en
venjulega, sváfu oftast illa.
5. Athugaðu, hvort þú færð
nægan svefn. Ef þú vaknar áð-
ur en vekjaraklukkan hringir,
hefir þú fengið nægan svefn.
En sértu dauðþreyttur, þegar
klukkan hringir, skaltu fara
fyrr að hátta.