Úrval - 01.10.1947, Blaðsíða 54
52 tJRVAL
yður,“ sagði landstjórinn. „En
þér gætuð reynt að hafa með
yður dálítið af súkkulaði og
vindlingum. Þér munuð furða
yður á, hve mikils jafnvel hin-
ir tignustu meta svo fágætan
varning.“
Hann símaði til krónprinsins
fyrir mig.
„Ég er að ónáða yður, yðar
hágöfgi, vegna amerísks blaða-
manns, sem gjarnan vildi fá við-
tal við yður.“
„Því miður ... önnum kafinn
... reyndar að fara að heiman
eftir tuttugu mínútur ...“
„Það hittist illa á. Maður þessi
er kominn beint frá New York
til þess að ná tali af yður. Hann
langar til að færa yður úrvals-
súkkulaði, amerískt, og vindl-
inga.“
„IJr því að svo er, er ef til
vill ...“
Andartaki síðar var ég á leið
til Hecklingen, þar sem krón-
prinsinn býr. Hann tekur aðdá-
un smábændanna og leikfanga-
gerðarmannanna þar í sveit sem
sjálfsögðum hlut og þiggur lotn-
ingarmerki þeirra í fleski, eggj-
um, alifuglum og öðru fágætu
lostæti með konunglegu lítillæti.
Á hæð einni fyrir ofan litla
þorpið stendur veiðiskáli prins-
ins eins og fornt vígi, ákjósan-
lega settur, miðað við þann til-
gang, sem hann var reistur í.
Hann var afskekktur og skógur-
inn huldi hann forvitnisaugum
náungans. Reyndist hann prins-
inum tilvalið athvarf, og á yngri
og hamingjusamari árum sínum
leitaði hann þangað með hinar
mörgu ástmeyjar sínar. Nú orð-
ið er ljóminn farinn af því öllu,
þótt ekki sé nema vegna hins
litla kolaskammts, sem frönsku
yfirvöldin láta honum í té.
Kvartanir hans leiddu loks til
þess, að franski landstjórinn
tók eignarnámi landsetur iðju-
höldsins Friederichs Wollfs í
útjaðri bæjarins — hús með nú-
tímasniði og vel búið húsgögn-
um. Þar hitti ég hann.
Þjónn vísaði mér leið inn í
lessal prinsins. Hans hágöfgi var
þegar farinn að reykja einn af
vindlingunum, sem ég hafði sent
inn til hans. Hann hélt á kass-
anum í vinstri hendi, um leið og
hann rétti mér þá hægri og heils-
aði mér vingjarnlega. Hann tal-
aði ensku reiprennandi. Klædd-
ur var hann gráum pokabuxum,
gráum ullarsokkum og sport-
skóm. Ég vissi, að hann var 63
ára, og sá nú, að útlit hans bar
fyllilega vott um þann aldur.