Úrval - 01.10.1947, Page 13
Af æðri dýrram eru mörgæsimar heíztu
íbúar
Suðurheirnskauis-
landanna.
Grein úr „Magazine Digest,“
eftir Cushmon Murphy.
QTRAX eftir komu sína til
^ suðurheimskautssvæðisins,
fór Byrd flotaforingi í göngu-
ferð út á ísinn og var einn síns
liðs. Það var ekki kunnugt, að
ísauðnin væri byggð mönnum,
en allt í einu rakst flotaforing-
inn á móttökunefnd innfæddra,
sem beið eftir honum.
Hinir innfæddu voru mjög
lágir vexti — lægri en dverg-
arnir í Afríku og miklu betur
til fara. Allir nefndarmennirnir
voru klæddir í svört kjólföt, og
skyrtubrjóst þeirra voru snjó-
hvít. Allt í einu gengu þeir
virðulega til móts við flotafor-
ingjann. Þeir staðnæmdust um
fimmtán metra frá honum, og
einn þeirra — sýnilega formað-
urinn — tók sig út úr hópnum
og gekk áfram í áttina til hans.
Formaðurinn nam staðar rétt
fyrir framan flotaforingjann.
Og svo skeði það einkennileg-
asta — formaðurinn hneigði
sig. Byrd flotaforingi brosti og
hneigði sig hæversklega á móti.
Síðan hneigðu allir nefndar-
menn sig.
Aldrei hefir nokkur landkönn-
uður hlotið svo vingjarnlegar og
virðulegar móttökur af hálfu
innfæddra. Þetta var eftirtekt-
arvert fyrir þá sök, að hin
prúðbúna nefnd var ekki skipuð
mönnum heldur mörgæsum,
eins og lesandinn mun hafa
rennt grun í.
Þessir virðulegu borgarar
suðurheimskautssvæðisins eru
einhver fegurstu, vingjarnleg-
ustu og vitrustu dýr á jörðu hér.
Þegar einn leiðangursmanna
Byrds fór nokkrum dögum síðar
í heimsókn til mörgæsanna, var
tekið á móti honum á sama hátt.
En í þetta sinn sýndi mörgæsa-
2*