Úrval - 01.10.1947, Page 85
""i
B □ K I N : I
KÍM |
Útdráttur úr dagbók og f
brcfimi, sem Kím skrif- |
aði á aldrimun seytján f
til tuttugu og eins árs. =
•
Gefið út I
af móður hans |
Vibeke Malthe-Brmm =
Kim Malthe-Bruun 17 ára.
Hinn 6. apríl 1945, einum mánuði áður en Þjóðverjar gáfust upp í :
Danmörku, voru fjórir ungir menn úr dönsku frelsishreyfingunni dæmd- |
ir til dauða og teknir af lífi. Einn þeirra var Kím Malthe-Bruun, 21 |
árs að aldri. Rúmu hálfu ári síðar gaf móðir hans út útdrátt úr dag- =
bók og bréfum, sem Kím hafði skrifað síðustu fjögur ár æfi sinnar. 1
Bókinni var frábærlega tekið af almenningi og gagnrýnendur luku =
upp einum munni um, að hún bæri vott um óvenju þroskað vitsmuna- I
og tilfinningalíf, og jafnframt ótvíræða rithöfundarhæfileika. En meira =
er um vert, að við lestur þessara æskubréfa kynnumst við góðum =
dreng, sem á sér fagrar hugsjónir og setur markið hátt. Við fylgjumst |
með ást hans til stúlkunnar sinnar, sjáum hana þroskast og vaxa við =
skilnað og samveru á vixl, unz hún hef3t upp í æðra veldi, skírist í i
eldi þeirrar reynslu, sem er öllu öðru þungbærari. Enginn mun ósnort- |
inn geta lesið kveðjubréf Kims til unnustu sinnar og móður.