Úrval - 01.10.1947, Blaðsíða 131
Bréf til ritstjórans:
Lœkning við ofdrykkju.
Herra ritstjóri!
Bg minnist þess, að ég las fyr-
ir þó nokkru síðan í riti yðar um
þrjár aðferðir til að lækna of-
drykkjusjúka.*) Þar sem mér er
kunnugt um fjórðu aðferðina, get
ég ekki stillt mig um að skýra
yður og lesendum yðar frá henni.
Þórður heitinn Sveinsson læknir,
faðir minn, er ef svo má segja
höfundur þeirrar aðferðar. Hún
er í fáum orðum svo sem hér
segir: Leggja skal hina sjúku
menn inn á hæli, þar skulu þeir
sviptir öllum mat í 14 daga og
ekki fá annað til að nærast á en
soðið vatn. Með þessu móti eru
öll eiturefni hreinsuð úr líkaman-
um, vel mætti setja þá í heitt al-
bað til þess að undirstrika hreins-
unina.. Eftir þennan 14 daga ,,kúr“
fá sjúklingarnir að borða góðan
mat í vikutíma, síðan eru þeir
sveltir aftur í tvo daga, síðan fá
þeir góðan mat í tvo daga og eru
útskrifaðir á 25. degi með þeirri
aðvörun, að næst þegar þeir hrasa
verði þeir sviptir mat i 18 daga.
Þannig taldi Þórður Sveinsson,
* Sjá „Er ofdrykkja ólækn-
andi?“ í 3. hefti þ. á. — Ritstj.
að hægt væri að skerpa vilja of-
drykkjusjúklinganna. Er þessi að-
ferð hliðstæð amerísku aðferðinni
í því að skerpa viljann, en þar
er það óttinn við uppsölu og leið-
indin í sambandi við þær, í stað
óttans við sultinn. Taldi hann að
ef menn væru teknir oftar fast-
ir fyrir ölvún á almannafæri en
þrisvar á ári, þá ætti að leggja
þá inn á hæli til lækningar, svo
sem áður segir.
Mér er kunnugt um, að Þórði
Sveinssyni tókst að gera of-
drykkjumenn alheilbrigða, með
þessu móti og aðrir héldust reglu-
samir langan tíma á eftir. Venzla-
menn hinna sjúku voru oft þránd-
ur í götu, því vegna hræðslu og
misskilnings þorðu þeir ekki að
leggja sjúklingana undir þessa
með öllu hættulausu aðferð. —
Kostur þessarar aðferðar fram
yfir þá amerísku er, hve hættu-
lítil hún er, sem ekki er hægt að
fullyrða um þá amerisku, miklu
kostnaðarminni og án efa eins ár-
angursrik. Þá er og losun eitur-
efna úr líkamanum ennfremur
stór kostur fram yfir amerísku
aðferðina.
Með þökk fyrir birtinguna,
Gunnlaugur Þórðarson.