Úrval - 01.12.1947, Page 28
Af myndunum og tekstanum, sem
hér fer á eftir, geturðu
lasrt —
Að búa ti!
andlitsgrímu.
Úr „The Strand,“
eftir Sally Shrimpton.
AÐ hefur tíðkazt um nokk-
urra alda skeið að taka ná-
grímur af frægum mönnum rétt
eftir andlátið. Margir munu
kannast við nágrímuna af Beet-
hoven, sem oft hefur birzt mynd
af í blöðum og bókum. En það
er óþarfi að bíða eftir að taka
andlitsmót fram yfir andlátið.
Það má allt eins gera á lifandi
manni, og það getur verið nógu
gaman að eiga líkan af andliti
sjálfs sín eða einhvers kimn-
ingja. Vandinn er ekki mikill,
en þó krefst það nokkurar þol-
inmæði og stillingar, einkum af
hendi þess, sem taka á mótið af.
Hér á eftir verður skýrt með
myndum og texta hvernig gera
á andlitsgrímu, en fyrst kemur
aðvörun: Látið börn ekki gera
andlitsgrímur hvert af öðru án
eftirlits. Þau geta hæglega stífl-
að vitin með gipsinu; og þeir
sem þjást af innilokunarkennd
(claustrophobia) ættu ekki að
láta taka af sér andlitsgrímu.
Það getur gripið þá ofsa-
hræðsla.
Þú kaupir þér fyrst gips. Það
fæst sjálfsagt í lyfjabúðum eða
í byggingarvöruverzlunum. Svo
þarftu að ná í einhvern til að
æfa þig á. (Og þá held ég ráð-
legast væri að byrja á því að
taka gipsmót af hendi. Ber þá
fyrst að gæta, að mótið má ekki
ná lengra en þangað sem hönd-
in er breiðust, svo að hægt sé
að ná því af þegar gipsið er orð-