Úrval - 01.12.1947, Blaðsíða 83
SÆLUEYJARNAR Á KYRRAHAFI
81
dóttur húseigandans. Þau felldu
hugi saman, giftust og fóru með
börn sín til Kókoseyja. Eliza-
beth og maður hennar hvíla nú
hlið við hlið í litla kirkjugarð-
imun á eyjunni, þar sem einnig
hvíla aðrir þrír „Rossar“, af-
komendur þeirra í þrjá liði. John
Sydney Clunies Ross — Ross VI
— dó í september 1944 1 loft-
árás Japana á eyjuna. Hann
lætur eftir sig son.
Rossarnir eru merkismenn.
Það félagslega skipulag, sem
þeir hafa skapað, hefur fætt af
sér þjóðfélag á eyjunni, sem býr
við farsælli og betri kjör en
nokkurs staðar þekkist í Aust-
urlöndum. Glæpir eru þar ná-
lega óþekkt fyrirbrigði; engar
peningaáhyggjur, engir skólar;
engin blöð og ekkert útvarp. Fé-
lagslegt öryggi er tryggt, og
vinna handa öllum sem vilja
vinna. Þetta hamingjusama ríki
var stofnað fyrir um 100 árum.
Skipulagið er þannig: við fæð-
ingu eru börnin skráð á mann-
talsskýrslur ríkisins. Drengir,
sem vilja vinna, eru settir á
kauplista f jórtán ára, og stúlk-
ur þrettán ára. Drengirnir eru
látnir vinna tvö ár á verkstæð-
um. Þeir, sem reynast vel, fá
fasta atvinnu sem bátasmiðir,
húsasmiðir, ..pípulagningamenn
eða rafmagnsmenn. Hinir slást
í hóp þeirra, sem vinna að
kópraframleiðslu, vegagerð,
garðrækt og öðru því líku. Allir
vinna níu stundir á dag, sex
daga í viku. Það er langur
vinnutími, en allir virðast
áhugasamir við vinnu sína.
Drengir kvænast nítján ára,
stúlkur sextán ára. Nýgift hjón
fá gefins frá ríkinu hús og all-
an húsbúnað. Þetta hefur þó
ekki alltaf reynzt framkvæman-
legt upp á síðkastið. Erfitt var
um byggingarefni á stríðsárun-
um, og 27 hús eyðilögðust í loft-
árásum Japana. Full laun fá
drengir þegar þeir ná tvítugs
aldri. Konur eru hálfdrættingar
á við karlmenn, án tillits til
aldurs, nema þær vinni einhver
vandasöm störf, t. d. Ijósmóður-
störf.
Við sextíu og fimm ára aldur
láta þeir af störfum, sem það
vilja, og fá uppfrá því hálf laun
til æfiloka. En þeim, sem vilja,
er frjálst að halda áfram að
vinna á meðan þeir geta. I sjúk-
dómsforföllum fá menn hálf
laun. Læknishjálp er ókeypis.
Einn af eyjarskeggjum ber titil-
inn lyfsali. Hann starfar líka
sem læknir, tannlæknir og ljós-