Úrval - 01.12.1947, Blaðsíða 99
OSCAR WILDE
97
færi maður auðvitað ekki þang-
að.
Eftir heimkomuna til Eng-
lands hélt Oscar Wilde margar
tækifærisræður um för sína til
Bandaríkjanna. Hann sagði
m. a.: „Englendingar og Ame-
ríkumenn hafa flest sameigin-
legt, nema auðvitað málið.“ I
febrúarmánuði 1883 fór hann til
Parísar og dvaldi þar í þrjá mán-
uði eða þar til hann var orðinn
uppiskroppa með fé. Hann bjó
í Hótel Voltaire og tók að stæla
Balzac í einu og öllu. Þegar hann
var við ritstörf klæddist
hann hvítum kyrtli, svipuðum
munkakufli Balzacs. Hann safn-
aði að sér ritum þessa fræga
höfundar og ritverkum um
hann, og gekk jafnvel við fíla-
beinsstaf, settan gimsteinum,
sem var nákvæmlega eins og
stafur Balzacs. „Hinn fyrri
Oscar er dauður,“ sagði hann,
við einn vina sinna. „Sá Oscar,
sem nú er á dagskrá, á ekkert
skylt við þá persónu, sem gekk
eftir Piccadilly með blóm í
hnappagatinu og sítt hár.“
Hann varð ákaflega hrifinn af
styttu Nerós í Louvre-safninu
og bað hárskera sinn að snyrta
höfuð sitt á sama hátt.
Þegar hann kom aftur til
London, var hann svo aðþrengd-
ur fjárhagslega, að hann veð-
setti gullpeninginn, sem hann
hafði fengið að verðlaunum fyrir
grískukunnáttu sína í skóla.
Hann veðsetti þenna pening oft
síðar er hann skorti fé, en leysti
hann jafnan út aftur, þegar
raknaði úr. Hann varpaði sér
nú út í hringiðu Lundúnalífs-
ins. „Ég er önnum kafinn við að
slæpast,“ skrifar hann um þetta
leyti, og það voru áreiðanlega
engar ýkjur, en brátt varð hann
að fara að flytja fyrirlestra á ný,
til þess að afla sér skotsilfurs.
*
Á fyrirlestrarför í nóvember-
mánuði 1883 trúlofaðist Oscar
tilvonandi eiginkonu sinni, Con-
stance Lloyd. Þau höfðu
kynnst fyrsta árið 1881 og fellt
þegar hugi saman. Oscar ætlaði
að hitta hana fljótt aftur, en
svo fór, að hann var búinn að
fara til Ameríku og Parísar, áð-
ur en fundum þeirra bar aftur
saman. Constance fekk þrjú
hjúskapartilboð frá öðrum á
meðan, en hún hafnaði þeim öll-
um, og eftir að þau Oscar hitt-
ust í síðara skiptið, skrifaði
hann henni bónorðsbréf. Hún
sendi jáyrði sitt bréflega. Það