Úrval - 01.12.1947, Side 91

Úrval - 01.12.1947, Side 91
OSCAR WILDE 89 sennilega haldið áfram á sömu braut, ef lagleg stúlka um tví- tugt, Mary Travers að nafni, hefði ekki leitað til hans vegna lasleika sumarið 1854. Wilde og Mary urðu fljótlega vinir og síðan elskendur. Þau voru talsvert mikið saman og hann eyddi í hana miklu f é. Kona hans komst að þessu, en leiddi það hjá sér, því að hún hugði, að þetta væri aðeins eitt af hin- um venjulegu ástarævintýrum hans. En Mary var ekki þess konar stúlka, að hún léti laust, það sem hún hafði náð tökum á. Wilde ákvað að losa sig við hana og bar á hana fé og ger- semar í því augnamiði. Henni var nú orðið Ijóst, að hann var orðinn henni afhuga, og hún hét því, að hann skyldi fá að gjalda brigðmælgi sinnar svo að um munaði. Hún byrjaði á því að skrifa nafnlaus bréf og kvæði, hvert öðru svívirðilegra, og síðan gaf hún út prentaðan bækling. Efn- ið var það, að „dr. Quilp“ nokk- ur hef ði svæft stúlku í lækninga- stofu sinni og síðan beitt hana ofbeldi. Sagan var brátt á hvers manns vörum í Dublin, og allir vissu, við hvern var átt. Síðan lét hún prenta bréf .þau, sem Wilde hafði skrifað henni og réð hóp af drengjum til að selja þau. Að lokum risu af þessu málaferli, og lyktaði þeim á þá lund, að Wilde var dæmdur í smásekt. Wilde tók þetta mál mjög nærri sér. Hann dró sig út úr samkvæmislífinu og gerðist hirðulaus um starf sitt. Auk þess varð hann fyrir ástvina- missi, er tvær gjafvaxta dætur hans fórust í eldsvoða á dans- skemmtun. William Wilde dó vorið 1876. Óvíst er um dánarorsökina, en hitt er víst, að hann var orðinn saddur lífdaga. Oscar Wilde hefur lýst móður sinni svo: „Hún var yndisleg kona. Hún laut ekki svo lágt að vera af- brýðisöm. Henni var vel kunn- ugt um lauslæti föður míns, en hún lét sem hún sæi það ekki. Þegar faðir minn lá banaleguna, kom svartklædd kona með slæðu fyrir andlitmu í heimsókn til hans á hverjum morgni. Hún fór rakleitt inn í svefnherbergið hans, settist á rúmstokkinn og sat þar allan daginn, án þess að mæla orð, og enginn skipti sér af henni. Það hefðu ekki margar eiginkonur þolað slíkt, en móðir mín vissi, að faðir minn unni þessari konu og að honum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.