Úrval - 01.12.1947, Side 125
OSCAR WILDE
123
tekið fyrst. Þessu var synj-
að, því að ákæruvaldið vildi að
dómfelling Taylors, sem var ó-
hjákvæmileg, yki á andúðina
gegn Wilde. Þegar Taylor hafði
verið fundinn sekur, var dóms-
uppkvaðningunni frestað, en
Wilde leiddur í sakborninga-
stúkuna. Karlvitnin, sem
Queensberry hafði mútað í fyrri
réttarhöldunum, höfðu verið vel
æfð, vel klædd, vel alin og vel
til þeirra gert á allan hátt.
Þeim var borgað fyrir að koma
í réttarsalinn, og þess var vand-
lega gætt, að þau yrðu ekki fyr-
ir áhrifum, sem gæti veikt fram-
burð þeirra. Þetta voru kynvill-
ingar og annar óþjóðalýður, og
lýsti dómarinn þeim sem hin-
um mestu úrhrökum, enda kom-
ust þeir flestir undir manna-
hendur síðar og voru dæmdir í
fangelsi fyrir ýmiskonar afbrot.
Kvenvitnin voru móðursjúkar
vinnukonur, sem dómarinn
hafði þau orð um, að ekki væru
takandi trúanlegar. Clarke
tókst að hrekja framburð
margra vitnanna og Wilde var
sýknaður af þeirri ákæru, að
hann hefði svívirt unglinga og
spillt sakleysi þeirra. Dómurinn
jrfir honum byggðist eingöngu
á framburði sökunauta, sem
höfðu um það tvennt að velja,
að vitna gegn honum eða verða
sakfelldir með honum.
Réttarhöldin stóðu í fjóra
daga. Dómarinn rakti það, sem
komið hafði fram við yfir-
heyrslurnar, og gerði það á
hlutlausan hátt, sem kallað er,
en hann gerði þó meira úr því,
sem vitnaði gegn Wilde, en
hinu, sem var honum til máls-
bóta. Kviðdómurinn dró sig í
hlé í tvær og hálfa klukkustund,
en kvað svo upp úrskurðinn
„sekur“ um öll ákæruatriðin,
nema eitt. Wilde var dæmdur í
tveggja ára betrunarhúsvinnu.
*
Það var vitundin um það, að
hann hafði skapað sér þessa
ógæfu sjálfur, sem gerði Wilde
fyrstu mánuði fangelsisvistar-
innar svo þjáningarfulla. Þó að
hann væri ekki vanur að
aumka sjálfan sig, hefði það
dregið úr þjáningum hans, ef
hann hefði getað gefið tilfinn-
ingum sínum lausan tauminn.
En hann hafði enga skynsam-
lega ástæðu til þess, því að
þjáningar hans voru sjálfskap-
arvíti, sem hann gat engum um
kennt, nema sjálfum sér.
Fangelsisvistin var hræðileg