Norðurljósið - 01.01.1970, Page 19
norðurljósið
19
mál ihans varð' að vinna bæði fólk sitt og aðra fyrir Drottin, sem
var með honum í jieirri viðleitni.
Kaj sagði mér frá (því, að hann var að fiska við Grænland og var
á skútu. Faðir hans og hróðir voru báðir á annarri skútu, minnir
fflig. Er þeir voru að leggja af stað heimleiðis, gerði vont veður.
Varð skúta hróður hans fyrir áfalli. Skipverjar sendu merki um, að
þeir þyrftu hjálp. Tókst Kaj að koma kaðli yfir í skútu þeirra bróð-
ur síns og tókst að bjarga mönnunum áður en skip þeirra sökk. V
eftir gátu þeir með engu móti skilið, hvernig hægt hefði verið að
koma kaðli á milli skip anna í slíku veðri sem var þá. Þeir náðu heil-
11 til hafnar í Færeyjum, en atvik þetta varð til þess, að bróðir hans
sneri sér til Krists.
Hin sagan gerðist á stríðsárunum. Eins og kunnugt er var mörg-
um íslenzkum fiskiskipum siglt með fisk til Bretiands á þeim árum.
Hið sama gerðu Færeyingar. Þeir sigldu til Bretlands með fisk, þótt
lífshætta væri það fyrir þá sem fslendinga.
Kaj var þá á skipi frá stóru útgerðarfyrirtæki í Færeyjum. Hann
sigldi oft til Bretlands, fól Guði skip og áhöfn, og allt gekk vel. Eitt
sinn er hann var í Bretlandi, kom sú tilkynning, að setja skyldi loft-
varnahyssur á ihvert fiskiskip.
Er Kaj fékk þessa tilkynningu, varð honum órótt. Honum fannst,
uð þetta væri ekki að setja traust sitt á Guð einan. Bað hann til Guðs
um þetta og tók þá ákvörðun: að halda áfram að treysta vernd Guðs,
en ekki vopna. Er hann hafði tekið þessa ákvörðun, kom sá maður á
sbipinu til hans, er næstur honum var að völdum, og benti honum á,
uð hann tæki mikla ábyrgð á sig gagnvart lífi skipshafnar sinnar, er
hann vildi ekki þiggja þessa öryggisráðstöfun. En Kaj breytti ekki
ákvörðun sinni.
Erá Bretlandi lá svo leið hans til íslands og þaðan til Færeyja.
Hafði hann átt langa útivist, og áður en hann náði landi í Færeyj-
UIÍ1’ hann skeyti frá útgerðarmanninum, er tjáði honum, að
banji ætti skilið dálitið frí. Hefði annar skipstjóri verið ráðinn á
skipið í næstu ferð.
Skipið var síðan lestað fiski á ný, og loftvarnarbvssur settar á
það. T>að lagði úr höfn um kl. 12 á miðnætti, og fyrir kl. 12 næsta
tbug var búið að sökkva því. Sannaðist þá, sem oftar það, sem biblí-
un segir. „Manna hjálp er fánýt.“ „En þeim er borgið, sem treystir
rottni. „Þeir, sem óttast Drottin, treysta Drottni, hann er hjálp