Norðurljósið - 01.01.1970, Síða 77
norðurljósið
77
senn. Hann er réttlætissólin, sem útrýmir öllu ranglæti, er Ihann kem-
ur. Hann er sumarið, er senn útrýmir vetrarríki ranglætis og kúg-
unar, sem mennirnir hafa beitt hverjir aðra.
Hvernig eigum við að búast við komu hans? Með því að gefa
gaum að því, er hann sagði: „Gætið sjálfra yðar, að hjörtu yðar of-
þyngist ekki við svall og drykkjuskap og áihyggju fyrir lífinu, og
komi svo þessi dagur (endurskoma hans) skyndilega yfir yður eins
og snara; því að koma mun hann yfir alla þá, sem 'búa á öllu yfir-
horði jarðarinnar. „Verið því ávallt vakandi oghiðjandi, til þess að
þér megnið að umflýja allt þetta, sem fram mun koma, og að stand-
ast frammi fyrir manns- syninum.“ (Lúk. 21. 34.—36.)
S. G. J.
Heilög ritnín0 er mfleHkvarðlnf) eíni
Það er vegna þessa, að ég skora fyrst á alla mína elskuðu bræður
í Kristi, að þeir á ný láti heilaga ritningu vera mælikvarðann eina á
alla hegðun og athöfn, hvort sem einn eða fleiri eiga í hlut.
Vér, sem fullyrðum, að orðin sjálf í heilagri ritningu séu guðlega
innblásin, tökum á oss þá skyldu, fremur öllum öðrum, að laga oss
eftir minnstu bendingu, sem hún gefur, um huga Guðs. Vér neitum
sjálfum oss um minnsta rétt til að ganga frarrihjá nokkru smáatriði
í heilögu orði Guðs, eða að sainþykkja nokkuð, sem orðið samþykk-
ir ekki. Það er skylda vor, hyggindi og einkaréttur að breyta í öllum
greinum eftir heilögum ákvörðunum Sálmaskáldsins (1) „Eg hefi
alhugað vegu mína, (2) og snúið fótum mínum að reglum þínum.
(3) Ég hefi flýtt mér og eigi tafið (4) að varðveita boð þín.“ (Sálm.
119. 59, 60.) Þess vegna: „rannsökum breytni vora og prófum og
snúum oss til Jahve.“ (Harmlj. 3. 40.) ....
Hið gamla verður að yfirgefa, þótt það kosti mikið. En þá skal
byggt á réLtum grundvelli: að leitast við að fylgja alveg fyrirmynd
nýja testamentisins. Gættu fjarska vandlega að orði Guðs, til að þú
finnir nákvæmlega, hvernig Guð hefir hugsað sér söfnuð sinn og
starf. Ef þú verður að flytja inn í nýjan andlegan bústað, eða þú
verður að reisa annan, þá rannsaka þú sem allra nákvæmast bygg-
ingarlýsingu og áætlun húsameistarans guðdómlega. Ef þú lítur í
kringum þig og sér hvergi neina, sem heiðarlega leitist við að fylgj a