Norðurljósið - 01.01.1970, Qupperneq 79
norðurlj ósið
79
Jesús framkvæmdi hreinsun þá, sem biblían skýrir frá. Blóðug átök
við Rómverja áttu sér líka stað. Flokkur Jesú beið ósigur, og Jesús
fól sig í grasgarðinum á Olíufjallinu. Júdas tók engan þátt í bar-
dögum þessum, því að 'hann var þjóðhollur maður, yfirvöldunum
búr, og vísaði þeim á staðinn, þar sem Jesús var í felum. Samkvæmt
peim lögum, sem Gyðingar höfðu um trúvillinga, var ekkert rangt
við það, að þeir væru með svikum seldir í hendur þjónum laga og
réttvísi.
Lausn Falk-Rönne er því þessi: Júdas var yfirvöldunum trúr.
Hann gerði skyldu sína. Hann var ekki sá svikari, sem ihann er al-
Wennt talinn.
Hvers vegna segja þá ekki guðspjöllin frá þessari uppreist, frá
þessum blóðugu átökum? Höfundar þeirra lagfærðu frásagnirnar,
hreyttu þeim. Það var þeim mun léttara, af því að þau voru ekki
rituð fyrr en nokkrum kynslóðum eftir daga Jesú, segja þessir höf-
undar. Sagt með öðrum orðum: Þeir voru bæði vísvitandi lygarar
°g sögufalsarar, sem táldregið hafa lesendur sína um átján alda skeið
eða lengur, svo að kristnin er reist á lygum og sögufalsi, ef Falk-
Rönne og Joel Carmichael segja satt.
En segja þeir satt? Er tilgáta þeirra rétt? Það er frjálst og leyfi-
legt að spyrja og leita svars. Má þá spyrja fyrst: Rituðu nokkrir aðr-
lr en guðspjallamennirnir um þessa atburði, sem gerðust, þegar
Jesús frá Nazaret var tekinn af lífi? Heimildir fornar herma, að svo
var gert.
Rómverski landstjórinn í Júdeu, Pontíus Pílatus, ritaði fyrstur
fnanna, svo að vitað sé, um líflát Jesú frá Nazaret. Hann reit skýrslu,
er skýrði frá þessum atburði, og sendi hana Tíberíusi keisara í Róm.
Menn vita um þessa skýrslu vegna þess, að trúverjendur kristnir
vitnuðu til hennar. Um 100 árum eftir dauða Krists ritaði Jústin,
auknefndur píslarvottur, rit sitt: „Vörn fyrir kristindóminn.“ í riti
þessu ávarpar hann keisarann, Antonius Pius, og ráðið í Róm á
þessa leið:
,,Og að þessir hlutir gerðust þannig, megið þér vita frá skýrslun-
um, er skráðar voru á dögum Pontíusar Pilatusar.“
Annar maður, sem kristnu trúna varði, Tertúllían, segir í riti sínu
uVörn fyrir nýju trúna“: „Um alla þessa 'hluti viðkomandi Krisli
sendi Pílatus — er í samvizku sinni var þegar orðinri kristinn —
skýrslu til Tíberíusar þáverandi keisara.“