Norðurljósið - 01.01.1970, Page 93
norðurljósið
93
dýrðinni hjá Guði. Næsta málið á dagskrá Guðs með þennan heim,
er endurkoma Krists til að stofna ríkið, sem heitið er í heilögu orði
hans, ríkið, sem á að ná yfir alla jörð, ríkið, sem Kristur sjálfur
stjórnar, ríkið, þar sem ísrael verður forustuþjóðin, þjóðin, sem
blessanir streyma frá til alls mannkynsins. Þetta ríki er og verður
fullkomið réttlætis ríki, því að grundvöllur þess er í rauninni fórnin
mikla, sem færð var á Golgata, þegar páskalambinu Jesú Kristi var
fórnað þar. An hennar fær hvorki mannssálin né jörðin nokkru
sinni frið.
Það er ekki nóg, að þekkja Drottin Jesúm sem góðan mann. Mað-
urinn þarf að þekkja hann sem „lanibið, er slátrað var frá grund-
völlun veraldar,“ þekkja hann sem þann, sem úbhellt hefir blóði sínu,
til þess að blóð hans geti hreinsað „oss af allri synd.“ (1. Jóh. 1. 7.)
Það er að eiga hlutdeild í þriðja bikarnum, sem Júdas drakk aldrei.
Hann gekk út, en þá var nótt. Þannig gengur fjöldi manna burt frá
friðþægingunni, gengur hvert? Út í nótt myrkurs og synda, efa-
seinda og vantrúar, út í myrkur eilífrar glötunar.
Kæri lesari minn, hefir þú drukkið þriðja bikarinn? Viðurkennir
þú, að Jesús sé Kristur, konungur þinn? Ertu að hlýða honum?
Hann úthelli blóði sínu til syndafyrirgefningar, svo að Guð gæti á
réttlátan hátt fyrirgefið þér. Reiðir þú þig á dauða Krists fyrir þig:
I Guðs nafni drekktu, andlega talað, af þriðja bikarnum, sem Drott-
inn Jesús sagði, að væri sáttmálablóð sitt. S. G. J.
Dirfskubragrð
Eftirfarandi saga getur verið lærdómsrík og gagnleg mörgum.
Hún óskast því lesin til enda.
Sagan er af ræðu, sem dr. Bill Rice hélt einu sinni. Hann var að
halda röð af samkomum í einhverri -borg í Bandaríkjunum. Fékk
hann ásamt prestinum á staðnum boð frá manni. Bað hann þá að
koma og finna sig. Maður þessi hafði illt orð á sér. Hann var bæði
drykkjumaður og kvennamaður. Þeir vonuðu, að hann vildi snúa
frá þessu líferni sínu. En erindið við þá var annað: Það var að
smána þá í orði og boðskapinn, sem fluttur var, því að hann var líka
auk hins vantrúarmaður. Varð engu tauti við hann komið. Hann
sagðist ætla að snúa sér til Krists áður en hann dæi, en lifa í synd
°g löstum þangað til.