Norðurljósið - 01.01.1970, Side 101
norðurljósið
101
— Ég minnist þess, að um 1920 sagði mér það maður íslenzkur, sem
ég þarf ekki að rengja, að útlendur maður, ung-fullorðinn, sem hann
nefndi og ég man vel nafnið á, hefði sagt við sig nýlega, að það væri
reyndar ekki sannað, að jörðin væri hnöttur. Vinur þessara manna
beggja, af sama þjóðerni og útlendi unglingurinn, bað íslending-
inn, er sagði mér þetta, að láta sem minnst á því bera, að unglingur-
inn hefði sagt þessa fjarstæðu. Þessi vinur okkar þessara ungu
manna þriggja, sem þá vorum það, iblygðaðist sín fyrir, að til var
þá, fyrir nær fimmtíu árum, einhver flokkur fólks í ættlandi þessara
útlendu manna, sem vildi draga í efa, að jörðin væri hnöttur, sem
fullsannað var þó öldum fyrr, að er staðreynd.
Upprisa Jesú Krists er líka staðreynd.
Ef Jesús Kristur hefði ekki risið upp frá dauðum, þá hefðum
við engan kristindóm nú. Þá hefði trúar boð Jesú Krists fallið um
sjálft sig, og siðakenninga hans að líkindum gætt lítið nú á dögum.
Og víst er, að befði Jesús Kristur ekki risið upp frá dauðum, hefðu
lærisveinar hans dreifzt og orðið kraftlausir kennimenn. — Enda
verða menn að muna það, að fram til þess tíma, er Jesús var kross-
festur og grafinn, héldu bans nánustu vinir dauðahaldi í þá von, að
hann, Jesús frá Nazaret, mundi bráðlega gerast konungur á VER-
ALDLEGA VÍSU í LANDI ÞEIRRA, Gyðingalandi. Það var ekkert
í færisveinunum sjálfum, sem gat breytt þeim — að Jesú látnum, en
ekki upprisnum -— í þá öruggu og kraftmiklu trúboðendur, sem þeir
urðu, þeirrar trúar, sem kristin trú er, eins og hún er greind í skrif-
um postulatímans.
Lærisveinar Jesú Krists, sem „fylltu Jerúsalem“ með kenning-
unni um upprisu Jesú, fáum vikum eftir, að hann dó og var grafinn,
uiattu líka fullvel vita, hvort þeir töluðu sannleika, er þeir sögðu, að
Jesús befði birzt þeim upprisinn og talað við þá um margt, sem
Guðs ríki heyrir til. — Ef einhverjir lærisveinar Jesú hefðu ætlað
að fara að búa til upprisusögu um meistara sinn, þá hefðu áreiðan-
lega verið til nógu margir beiðarlegir menn, til að afsanna slíka
sogu, — til dæmis með því að sýna lík Jesú — og hefði þá upprisu-
falsprédikunin fallið um sjálfa sig. — En svo var ekki. Af því að
Jesús reis upp frá dauðum, hefir predikunin um upprisu hans aldrei
verið fals. Hún hefir alltaf verið og verður sannleikur. — Og, eins
°g einn æðsti maður þjóðar vorrar sagði í ræðu 15. marz 1964, þá
er það svo, að „án upprisunnar væri enginn kristindómur“.