Norðurljósið - 01.01.1970, Page 116
116
NORÐURLJÓSIÐ
um boðorð hans og gerum það, sem honum er þóknanlegt.“ (1. Jóh.
3. 21., 22.) Hér er gert ráð fyrir bæn til Guðs, Föðurins, sbr. næsta
vers, er talar um son hans, Jesúm Krist.
í Opinb.bókinni 5. 13., 14. sjáum vér allt hið skapaða veita Guði,
Föðurnum, og Lambinu, Jesú Kristi, jafna vegsemd, lofgerð og
dýrð. Þetta minnir á orð Drottins Jesú, er hann sagði, að Faðirinn
hefir „falið Syninum á hendur allan dóm, til þess að allir heiðri
Soninn, eins og þeir heiðra föðurinn.“ (Jóh. 5. 22., 23.)
Biblían endar svo á 'beinni og óbeinni bæn til Drottins Jesú: „Kom
þú, Drottinn Jesús. Náðin Drottins Jesú sé með hinum heilögu.'1
Þetta gefur fyrirmynd um þær bænir, sem við getum beint til frels-
ara okkar og Drottins, Jesú Krists.
En eigum við að biðja Jesúm eða Föðurinn um lækningu, ef við
erum veik?
Við lesum í bréfi Jakobs 5. 14.—16. á þessa leið: „Sé einhver
sjúkur yðar á meðal, þá kalli hann til sín öldunga safnaðarins og
þeir skulu smyrja ihann með olíu í nafni Drottins og biðjast fyrir
yfir honum; og trúarbænin mun gera hinn sjúka heilan, og Drott-
inn mun reisa hann á fætur, og þær syndir, sem hann kann að hafa
drýgt, munu honum verða fyrirgefnar. Játið því hver fyrir öðrum
syndir yðar og biðjið hver fyrir öðrum, til þess að þér verðið heil-
brigðir.“
Táknar „Drottinn“ hér Föðurinn eða Soninn? Við sjáuin af
guðspjöllunum, að Drottinn Jesús bæði læknaði sjálfur og líka gaf
öðrum, lærisveinum sínum, mátt og vald til að lækna. Fólkið kom
til hans til að fá lækningu og í nafni hans læknaði Pétur lama mann-
inn. (Post. 3.) Þegar hann hitti Eneas (Post. 9. 32.—35.) sagði
hann við hann: „Eneas, Jesús Kristur læknar þig.“ Þar með varð
maðurinn alheill. Hins vegar sjáum við af Post. 4. 29., 30., að hinir
trúuðu væntu þess, að Drottinn (Faðirinn) rétti út hönd sína til
lækninga, til þess að tákn og undur skyldu gerast fyrir nafn Jesú.
Við sjáum þá af öllu þessu, að biblían sjálf — svona fljótt á lit-
ið — dregur engar hreinar línur á milli bæna til Guðs, Föðurins, og
Guðs, Sonarins. Allar góðar gjafir koma frá Guði. Föðurnum á að
færa þakkir fyrir fæðu og allt annað, sem hann gefur okkur. Allt
hið góða á upptök sín hjá bonum. Ef við biðjum Föðurinn, fáum
við bænheyrslu vegna nafns Drottins Jesú. Og ef við biðjum Drottin
Jesúm um lækningu eða að frelsa okkur og fyrirgefa okkur synd-