Norðurljósið - 01.01.1970, Síða 119
NORÐURLJÓSIÐ
119
Við skulum 'byrja á því, Júlíus Ólafsson, að leita til orða Jesú
Krists sjálfs í biblíunni. Um orð hans höfum við engar aðrar heim-
ildir en hana, sem verið hefir og á að vera leiðsögubók kristinna
manna um kennirigar Krists og postula hans.
Við flettum þá fyrst upp guðspjalli Matteusar, 20. 28. og lesum
þar þessi orð Jesú: „Manns-sonurinn er ekki kominn til að láta
þjóna sér, heldur til þess að þjóna og til þess að leggja líf sitt í söl-
urnar sem lausnargjald fyrir marga.“ Samkvæmt 2. Mósebók 30.
11.—16. var lausnargjaldið friðþægingargjald, svo að með þessum
orðum kennir Jesús, að dauði hans er friðþæging.
Við lítum aftur í sama guðspjall 26. kafla 27. og 28. grein. Þar
slendur: „Og hann (Jesús) tók bikar, gjörði þakkir og gaf þeim
og sagði: ,Drekkið af honum allir; því að þetta er sáttmála'blóð mitt,
sem úthellt er fyrir marga til syndafyrirgefningar.1 “ Þetta eru orð
Jesú sjálfs um friðþæginguna, töluð, meðan hann var enn hér á
jörðu. Markús ritar þannig í 14. k. 24. grein: „Og hann sagði: ,Þetta
er sáttmáláblóð mitt, sem út hellt er fyrir marga.1 “ Lúkas ritar: „Á
sama hátt tók hann eftir kvöldmáltíðina bikarinn og mælti: ,Þessi
bikar er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði, sem fyrir yður er úthellt.‘ “
(Lúk. 22. 20.) Guðspjallamönnunum ber þannig saman um, að
Jesús hafi sagt, að blóði hans væri úthellt fyrir aðra. Hvernig getum
við efazt um, að þeir fari rétt með orð hans?
Það er einmitt friðþæging Jesú, sem er grundvöllur kristinnar
trúar. Friðþægingu Krists neita engir menn, er veitt hafa Jesú við-
töku sem frelsara sínum og öðlazt fyrirgefning synda sinna vegna
dauða hans á krossinum á Golgata. Þeir segja með Páli postula:
„Sonur Guðs elskaði mig og ktgði sjálfan sig í sölurnar fyrir mig.“
(Gal. 2. 20.) I sama streng tók Hallgrímur Pétursson í Passíusálm-
unum: „Gleðst þú, mín sál, mig græddi Guðs sonar heilagt blóð. Þó
synd og sorgin mæddi, sjá, hér er lækning góð.“
Augljóst er, að Júlíusi Ölafssyni er ekki ljóst, að hann afneitar
kristinni trú, þegar hann afneitar friðþægingunni. Það er kenningin
um friðþægingu Krists, er skilur kristnina frá öðrum trúarbrögðum.
Hann leggur mikla áherzlu á góð verk til að verða sálúhólpinn. Góð
verk eru mikilvægt atriði sem ávöxtur trúarinnar á Jesúm Krist. En
það verður enginn hólpinn fyrir þau. Það sést glöggt af þessum
orðum:
„Af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú, og það er ekki yður að