Norðurljósið - 01.01.1970, Side 125
NORÐURLJ ÓSIÐ
125
ALBANÍA. Þar er þrengt mest að kristnum mönnum austan
„tjalds“. Þar ræður „Kína-kommúnismi“ lögum og lofum. Eru
kristnir menn í Zagreb settir í liin verstu skítverk og virðast að
mestu réttlausir menn.
Það, sem kristna fólkið í öllum þessum löndum þráir mest, er
Guðs orð, biblían. Reynt er með ýmsu móti að bæta úr þessu. Einn
maður hefir um aldarfjórðungs skeið stundað smygl á biblíum, sem
fara til landa austan járntjalds. Er stórfurðulegt, hvernig hann hefir
oft verið varðveittur af Guði við þetta verk og biblíurnar svo að
segja gerðar ósýnilegar augum landamæravarða og annarra, sem
rannsakað hafa bifreiðina hans. Hefir bann nýlega skrifað bók, sem
ég hefi séð getið í erlendum blöðum, um þetta nauðsynlega, en
hættulega starf sitt.
Næst-heitasta þrá fólksins austan tjalds er svo þráin eftir fyrir-
hæn. Enginn getur verið fyllilega öruggur, að ekki brjótist út of-
sókn eða verðir laganna geri skyndiheimsókn til að vita, hvort ekki
sé verið að halda ólöglega samkomu.
Með undanfarnar upplýsingar fyrir augum skulum við, trúaða
fólkið á íslandi, ibiðja fyrir 'bræðrum okkar og systrum austan járn-
tjalds. Ekki má heldur gleyma þeim, sem heima eiga í Kína, þótt
fátt berist þaðan af fréttum.
íslenzka þjóðin sendi stórar gjafir og veitti mikla hjálp hungruðu
fólki í Biafra. Islenzkir flugmenn lögðu líf sitt í hættu þeim til hjálp-
ar. Svo er að sjá, að Guð hafi skjótt launað þjóðinni góðverk henn-
ar, gert það með stórbættum efnahag ríkisins á einu ári. „Sá lánar
Drottni, er líknar fátækum og hann mun launa honum góðverk
hans.“ ÍOrðskv. 19. 17.) Það getur því naumast farið hjá því, að
Drottinn launi þeim hörnum sínum með andlegum blessunum, sem
vilja nú og framvegis taka daglega einhvern tíma til að hiðja fyrir
jiessum börnum Guðs, sem búa austan járntjalds. S. G. J.
Eftir öðrum heimildum má geta þess, að ársfjórðungsrit er gefið
úl á rússnesku utan Rússlands. Er ritstjóri þess rússneskur maður
að nafni George Urban. Flytur það fagnaðarboðskap Krists. Berast
hefti af því víða um Rússland. Hafa margir snúið sér til Krists
við lestur þess og trúaða fólkið styrkzt í trú sinni. Er beðið um
fyrirbæn fyrir þessu riti.