Norðurljósið - 01.01.1970, Side 165
norðurljósið
165
er ósk útgefandans, að mega senda ritið ókeypis til Guðs barna, sem
geta lesið ensku. Utanáskriftin er: Mr. Gharles Nunnerley, High
Down, Cokes Lane, Chalfont St. Giles, Bucks, 'England.
5. Leyndardómurinn.
A sérhverri öld safnaðar Krists, þegar þörf er á endurnýjun kraft-
arins, endurkveikingu kærleikans, lausn frá deyfð og aðgerðaleysi,
þá kemur þetta einungis frá fyllri og dýpri þekkingu á Drottni og
sannleika hans, frá endurnýjaðri skoðun á augliti hans og dýrð.
Adolf Saphir. („Things Concerning Himself.“)
Allir trúaðir lesendur eru beðnir að íhuga þessi orð og geyrna
þau í hjarta sínu og að beina augum sínum á ný að augliti Drottins
Jesú og dýrð hans. — S.G.J.
BEINUM ATHYGLI VORRI AÐ KRISTI.
„En allir vér, sem með óhjúpuðu andliti skoðum sem í spegli
dýrð Drottins breytumst í hina sömu mynd frá dýrð til dýrðar eins
og af Anda Drottins.“ (2. Kor. 3. 18. Ensk þýð.)
Leyndardómur heilagleika kristins manns er sá, að hjartanu sé
beint að Kristi sjálfum. Þegar vér langtímum horfum á hann, verð-
um vér lí'k honum. Vilt þú verða heilagur? Notaðu þá mikinn tíma
i það, að vera í nálægð hans. Láttu yndisleik hins upprisna Drott-
ins fylla svo sýn sálar þinnar, að allt annað verði lokað úti. Þá mun
það, sem holdsins er, visna upp og hverfa, en það, sem Andans er,
verða allra mikilvægast í lífinu. Við verðum ekki heilög með því
að horfa inn í hjörtu okkar. Þar finnum við aðeins sipllingu. En
þegar við hættum alveg að 'horfa á okkur, en „Beinum sjónum vor-
um til Jesú,“ þegar hann er unaðar uppspretta vor, þegar vér íhug-
um heilagleika hans, hreinlei'ka, kærleika og samúð, áhuga hans
að gera vilja föðurins, þá munum vér umbreytast, ef til vill án þess
að vér veitum því athygli sjálf, breytast í blessuðu myndina hans.
Engin önnur leið er til, sem vér getum farið, til að verða heilagir í
raun og veru og leystir frá valdi holdsins og grundvallarreglna þessa
heims. Harry A. Ironside. (Things Concerning Himself.)
Þessi ráðlegging dr. Ironsides: að horfa á Jesúm og beina athygl-
inni að honum, var sannprófuð af sjálfum honum. Hann þráði líf í
helgun, öðlaðist „reynslu,“ sem varð efni vitnisburðar hans, í stað