Tímarit Máls og menningar - 01.12.1975, Page 119
]ón Sigurðsson
Hrafnkatla: sinnaskipti
eða samfélagsskipan
Hermann Pálsson hefur í nokkrum ritgerðum sett fram athyglisverðar
skoðanir á lífsviðhorfum og siðfræði í Islendinga sögum og einkum Hrafn-
kels sögu. Skýrast munu þessar skoðanir hafa komið fram í bók Hermanns,
Siðfrceði Hrafnkels sögu (Reykjavík 1966), en þar segir hann m. a.:
„Hrafnkels saga er með öðrum orðum ekki einungis kristið verk, heldur
ber hún glögg merki eftir siðfræði miðalda“ (bls. 23). Og undir lok bókar-
innar segir Hermann einnig: „... en hefði höfundi hennar [Hrafnkels
sögu] auðnazt að semja slíkt snilldarverk, ef hann hefði ekki verið hámennt-
aður klerkur, sem beitti kristilegri sálfræðikunnáttu sinni í því skyni að
skrifa þessa dæmisögu um menn og mannleg vandamál... ?“ (bls. 126).
Hermann hefur allnokkuð fjallað um höfund Hrafnkels sögu, en ekki
verður vikið að því efni hér þótt það sé að vísu nátengt þeim atriðum
sem hér verða rædd. Hér verður sú skoðun hans hins vegar gerð að um-
ræðuefni að Hrafnkels saga Freysgoða sé ekki aðeins greinilega kristilegt
verk, heldur beinlínis klerkleg siðfræðileg dæmisaga.
Þetta efni er í raun og veru tvíþætt. Hér er um að ræða endurmat á
einni af perlum íslenzkra bókmennta annars vegar, og ef slíkt endurmat
reynist réttmætt, þá mun það hins vegar leiða það af sér að nýju ljósi verð-
ur varpað á ýmsar undirstöður íslenzkrar menningar og mennta á miðöld-
um. Þetta síðarnefnda verkefni er vitanlega með þvílíkum vöxtum að það
verður ekki rætt að sinni, en nokkur orð verða lögð í belg um hið fyrra.
Nú er það svo að Hrafnkels saga getur ágætavel verið kristið verk og
lýst kristnum viðhorfum þótt sagan þurfi ekki þar fyrir að vera sérstak-
lega klerkleg eða siðfræðileg dæmisaga. Ritverk getur mætavel verið tekið
saman í kristnum anda þótt ekki sé endalaust tönnlazt á guðsorði spjald-
anna milli. Beztu bókmenntir fela í sér hugmyndaheim, lífsviðhorf og sið-
ferðilegan boðskap sem óaðskiljanlegan þátt í heild verksins. Til þess að
357