Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 96
94
Páll S. Árdal
Skírnir
gildi sé hliðstæð vitneskjunni, sem við öðlumst um vcruleik
ann með tilstyrk skynfæranna. Þessi aðferð hans varpar röngu
ljósi á eðli gildisdóma.
Þegar hefur verið bent á, að við höfum aðferðir til að
ganga úr skugga um, hvort einhver hlutur sé raunverulega
rauður. Litblindur maður mundi, ef hann er sanngjarn, taka
aftur staðhæfingu sína, að fáni Sovjetríkjanna sé eins á lit-
inn og grasið á Arnarhóli, ef honum er sýnt fram á, að hann
sé litblindur. Hann er ekki bezt dómbær um það sjálfur, hvað
rautt er í raun og veru, þótt hann geti enn sagt: „Mér sýnist
samt fáni Sovétríkjanna grænn". Hann hefur nú breytt stað-
hæfingu sinni þannig, að erfitt er að véfengja hana. Við erum
hver og einn bezt dómbærir um það, hvað okkur sýnist. Þekk-
ing okkar er hér bein, en sama máli gegnir ekki um þekkingu
okkar á því, hvernig hlutirnir eru í raun og veru, því að okk-
ur getur oft skjátlazt. Við notum t. d. hitamæla til þess að
skera úr um, hvort vatnið í tveimur skálum sé jafnheitt. Við
rekum hendurnar niður í skálamar og segjum: „Jafnheitt“.
Hitamælirinn sýnir mun á hitastigi vatnsins í skálunum, og
nú segjum við: „Mér fannst það jafnheitt“. Moore virðist
álíta, að við öðlumst þekkingu á því, hvað hefur raunveru-
legt gildi, á sama hátt og við vitum, hvað okkur sýnist, virð-
ist, þegar um skynreynslu er að ræða, en um það er „skynj-
andinn“ bezt dómbær sjálfur. En deila um gildi er talin vera
deila um, hvort hlutur hafi í raun og veru eiginleikann, sem
„góður“ merkir. Annar hvor hlýtur að hafa á röngu að
standa, en við getum aldrei skorið úr um, hvor er réttsýnni,
fyrst bein reynsla er hér talin mælikvarði raunveruleikans,
en hver okkar fyrir sig er bezt dómbær um, hvað honum
virðist.
IV. Lýsir mat tilfinningum?
Hægt er að halda því fram, að gildisdómar séu í raun og
veru staðhæfingar um tilfinningar þess, sem dóminn fellir.
Við höfum ýmist jákvæðar eða neikvæðar tilfinningar gagn-
vart hlutum, og er við segjum, að eitt sé gott, annað illt,
erum við einungis að staðhæfa, að við höfum þessar tilfinn-