Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 115
Skírair
Magnús Jónsson í Vigur
113
jarðarinnar, og er þar vafalaust eitthvert samband á milli.
Skiptagerðin eftir Magnús digra mun nú ekki lengur vera til.
Sigurður í Vigur varð ekki gamall, og dáinn er hann 1710,
þegar jarðabókin er gerð fyrir ögurssveit. Þar býr þá Jón,
stjúpfaðir Sigurðar. Mun hann hafa andazt í stórubólu árið
1707. Hálfbróðir Sigurðar var Ólafur á Eyri í Seyðisfirði,
kunnur maður, sem mikill ættbogi er frá.
V
Árið 1692, þegar Magnús var orðinn 55 ára að aldri, gekk
hann að eiga Sesselju, dóttur Sæmundar Magnússonar, bónda
og lögsagnara á Hóli í Bolungarvik, og var hún þá 19 ára
gömul. Magnús, faðir Sæmundar, var Sæmundsson, Áma-
sonar, Gíslasonar sýslumanns á Hlíðarenda. Til þessarar
giftingar fekk Magnús konungsleyfi, og var það gefið út
27. april 1688, en lesið á Alþingi 1691.
Sesselju og Magnúsi varð ekki barna auðið. Árið 1703 býr
Sesselja á Hóli í Bolungarvik, á móti föður sínum, og er þá
Sigmundur, bróðir hennar, forráðamaður hennar. Hún var
þá 31 árs að aldri.
VI
Magnús digri bjó góðu búi í Vigur. I heimildum er hann
talinn hafa verið mikill bóndi, og vafalaust hefur hann haft
mikinn útveg og látið skip sín stunda veiðar innan Núpa
utan vetrarvertíða, en flutt þau þá í Bolungarvík eða önnur
útver og haldið þeim þaðan út. I góðæmm til sjávarins barst
honum mikil björg í bú. Þannig var það árið 1686. Afla-
brögð urðu þá svo mikil, að kaupmenn tregðuðust við að
veita viðtöku skreið Magnúsar, enda mun þá hafa skort skip
til að flytja erlendis allt það fiskmagn, sem á hoðstólum var
haustið 1686, eða þá að eftirspurn eftir fiski hefur verið lítil
í útlöndum. Magnús digri sætti sig ekki við undanfærslu
kaupmanna á Skutulsfjarðareyri og vildi fá heimild til þess
að selja fisk sinn á öðru kaupsvæði. Undir það mun dauflega
hafa verið tekið, enda var við ramman reip að draga, þar
sem var einokunarverzlunin danska. Þá leitaði Magnús til
8