Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 160
158
Gunnar Sveinsson
Skírnir
ekki aðallega við stíl Islendingasagna, eins og tíðast var um
þær mundir bæði meðal skólapilta og annarra.
Rúmum þremur árum eftir, að Gestur samdi þessar fyrstu
sögur sínar, þýddi hann ævintýrið Næturgalann eftir H. C.
Andersen.1) Þetta ævintýri hefur haft áhrif á síðustu skóla-
sögu Gests, ævintýrið Svaninn, er hann samdi í maímánuði
1873.2) Þar gætir svipaðrar tilfinningasemi og í öðrum skóla-
ritsmíðum hans.
Á þriðja skólaári sínu tók Gestur að birta ljóð eftir sig í
Fjölsvinni og orti töluvert fram að stúdentsprófi. Mörg skóla-
kvæðanna voru prentuð í Skáldritum hans i Reykjavík 1902
og eru þar á 289.—332. og 362.—63. bls., hin elztu tímasett
1871. Þau eru flest viðkvæmnis- og þunglyndisleg, stirðlega
ort og orðaval víða óheppilegt. Áhrif á þessi kvæði Gests eru
langsamlega sterkust frá Kristjáni Jónssyni Fjallaskáldi. Á
sama hátt og Kristján lætur Gestur fólk rifja upp raunalega
ævi á banastundinni, svo sem Hinn siSasti Rómverji á bana-
stundinni,3) en fyrirmynd kvæðisins er Þorkell máni eftir
Kristján (einnig orðalagslíking við kvæði Kristjáns Allt breyt-
ist). Kvæðið Nótt eftir Gest er sem bergmál frá samnefndu
kvæði Kristjáns, og svo mætti lengi telja. Gestur orti nokkur
tækifæriskvæði í skóla, og voru a. m. k. 4 þeirra sérprentuð.4)
Eitt gamankvæði er til eftir hann í JS 398, 8vo: Vísur,
sungnar viS bálför latneskra stílakompna sumariS 1874. Loks
orti hann einn sálm, sem var sérprentaður ásamt öðru kvæði
eftir Benedikt Gröndal: Kveldsöngvar á gamlárskveld 1874.
Kemur þar greinilega í ljós, að Gestur hefur haft einlæga
trúarvissu þrátt fyrir bölsýni sína.
Eins og að líkum lætur, er breitt bilið milli skólasagna Gests
1) Fjölsvinnur, marz og apríl 1873, Lbs. 3321, 4to, 199.—200. bls. og
Lbs. 3322, 4to, 1.—13. bls.
2) Lbs. 2161, 4to; fyrst pr. í Ritum Gests I, Winnipeg 1902.
3) Fjölsvinnur, april 1871, Lbs. 3367, 4to, 5.—9. bls.
4) Á sumardaginn fyrsta 1874, Á þjöðhátíS skólapilta 1874 (prentað
í Víkverja 3. júlí 1874 (Minni Islands) og í Norðanfara 24. júlí s. á.),
Til Péturs Gudjohnsen, á fœSingardegi hans 29. nóvbr. 1874 (prentað í
Norðanfara 19. febrúar 1875) og Til Jóns SigurSssonar. ViS komu hans
til alþingis 1875.