Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 147
Skírnir
Islenzkur skólaskáldskapur 1846—1882
145
um í Reykjavík 1864. Aftur var það prentað 1898 í mjög
breyttri mynd undir heitinu Skugga-Sveinn. Leikurinn er
byggður á iitilegumannasögu, sem mun vera hugsmíð Matt-
híasar sjálfs. Eflaust hafa sambýlismenn hans þennan vet-
ur, þeir Jón Árnason og Sigurður málari Guðmundsson, haft
einhver áhrif á gerð leiksins og efni hans, sem hnígur mjög
að íslenzkri þjóðtrú. Sigurður málaði leiktjöldin og sagði fyr-
ir um búninga leikendanna. Hann samdi og eitt atriði leiks-
ins, Draum Skugga-Sveins,1) en í frumútgáfunni 1864 er það
stytt að miklum mun og breytt. Matthías hefur einkum
stuðzt við erlend skáldrit við samningu tJtilegumannanna.
Helzta innlenda fyrirmyndin er skáldsagan Piltur og stúlka
eftir Jón Thoroddsen, einkum varðandi gerð sumra persón-
anna (elskendanna og aukapersónanna). — Síðar á ævinni
samdi Matthías nokkur leikrit, en ekkert þeirra jafnast á við
þessa frumsmíð hans, sem er gædd miklu æskufjöri og lífs-
magni. Breytingarnar á leiknum síðar hafa tæplega verið til
bóta, því að við það hefur hann glatað mjög upphaflegum
ferskleik sínum.
Matthías var óvenjidega seinþroska sem skáld. Hann fór
varla að yrkja góð kvæði fyrr en á þriðja skólaári sínu, þá
á 27. aldursári (kvæðin í tJtilegumönnunum). Eftir það tek-
ur kveðskapur hans skjótum og undraverðum framförum,
einkum eftir að skólanámi hans lauk. í>ó að hann bæri varla
stórum af mörgum skólaskáldanna á árunum 1846—82, átti
hann eftir að skara því meir fram úr þeim öllum sem lengra
leið frá skólaárunum.
Kristján Jónsson var fæddur í Krossdal í Kelduhverfi
13.2) júní 1842. Eftir fermingu 1856 var hann 7 ár í vinnu-
mennsku, síðustu 4 árin á Hólsfjöllum, sem
viðurnefni hans, Fjallaskáld, er af dregið.
Veturinn 1863—64 var hann í Reykjavík
til að læra undir skóla, sat síðan 4 vetur í lærða skólanum,
en lauk aðeins þriggja vetra námi (var 2 vetur í 2. bekk).
Kristján
Jónsson.
1) Prentaður í Skími 1946, 55.—56. bls.
2) Samkvæmt kirkjubók var hann fæddur þann dag, en ekki 21. s. m.,
eins og talið hefur verið.
10