Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 116
114
Jóhann Gunnar Ölafsson
Skírnir
Magnúsar Magnússonar sýslumanns á Eyri í Seyðisfirði og
æskti dóms hans um þetta mál. Gekk dómur á Eyri 4. apríl
1687. Þeim dómi skaut Magnús digri til lögþingsins á Al
þingi, og var dæmt í því um sumarið. Málavöxtum er í
alþingisdóminum lýst á þá leið, að danskir kaupmenn á
Skutulsfjarðareyri hafi hvorki viljað taka né kaupa harðan
og vel flattan fisk, nokkur hundruð vættir, eftir stakksins
stærð og vídd, fergðan og fastan, sem Magnús átti heima í
Vigur, sökum þeirrar mergðar af söltuðum og ósöltuðum fiski,
sem að þeim bærist. Lögþingismennirnir svöruðu því til, að
þeir vildu hvorki samþykkja né styðja að því, að þessi fiskur
yrði fluttur til framandi kaupstaða og seldur þar með afföll-
um eða fyrir óvalda vöru. Virtist þeim nauðsynlegt, að fisk-
urinn yrði seldur landsmönnum fyrir verijulega landsaura,
sem kaupandi og seljandi yrði ásáttir um. Dómsmenn færðu
þau rök fyrir þessari ályktun sinni, að margir gangi nærri
sér í fisksölum og taki oft óþarfa vöru fyrir, svo að þeir verði
óbirgir fyrir sig og heimili sitt, „hvar af orsakast kann stór
og þungbær landsólukka, hungur og dýrtíð, einkum þá fisk-
urinn er í minna lagi, svo sem nú allviða áhorfist“.
Talið er, að fiskstakkur þessi hafi verið um 400 vættir að
þyngd. Ef gert er ráð fyrir tíu fjórðunga vætt, hefur stakk-
urinn verið um 20 smálestir að þyngd. Má af þessu ráða,
hversu mikill útvegur Magnúsar hefur verið um þessar
mundir, þó að gera megi ráð fyrir, að hann hafi fengið all-
mikinn fisk í landskuldir.
Þessi málssókn er dæmi um skaplyndi Magnúsar. Honum
var ekki gefið um að láta undan, jafnvel þótt hinir voldugu,
dönsku einokunai'kaupmenn ættu hlut að máli.
f jarðabókinni frá 1710 er lýsing á gögnum og gæðum
í Vigur, og er ekki látið mikið af þeim. Fénaður var þar ekki
mikill, 4 leigukúgildi, 4 kýr, 1 naut, 1 kálfur, 42 ær, 30 sauð-
ir og 1 hestur. Þó er sagt, að fóðrast kunni aðeins 3 kýr, 12
lömb og 40 ær „á útigang vogað, en bjargarlausar þegar
að herðir“.
Hlunnindi eru talin vera rýr. Eggver af æðarfugli og önd-
um er sagt ekki teljandi með hlunnindum. Lundatekja er