Skírnir - 01.01.1956, Blaðsíða 168
166
Gunnar Sveinsson
Skimir
Hannes
Hafstein.
lamalegar að orðfæri. Auk kvæðanna þýddi Jón ævintýrið
Álfana eftir Tieck1) á fagurt og þróttmikið mál. — Kvæði
Jóns frá skólaárum hans skortir mjög mýkt, en þau sýna
málsstyrk hans og skapfestu.
Að loknu námi í Reykjavík orti Jón minna en áður. Hann
sökkti sér niður í rannsóknir á íslenzkum bókmenntum og
sögu á miðöld og orti af samúð um ýmsa miðaldarmenn,
sem hann fékk mætur á. Kvæði sín birti hann stundum
nafnlaust, en gaf þau út 1923 undir heitinu Vísnakver Forn-
ólfs. Hér er bæði um gríðarmikla framför og stefnubreytingu
að ræða frá skólakveðskap Jóns. Það, sem helzt er sambæri-
legt með æskukvæðunum og sögukvæðunum siðar, er hreint
og kjarnmikið mál, en stíll hinna síðari kvæða hans er ólíkt
hnitmiðaðri og yfirbragðsmeiri.
Hannes Hafstein var fæddur á Möðruvöllum í Hörgárdal
4. desember 1861. Hann settist í lærða skólann 1874, aðeins
tæpra 13 ára að aldri, lauk þaðan stúdents-
prófi 1880 og prófi í lögfræði frá Hafnar-
háskóla 1886. Hann var settur sýslumaður
Dalamanna 1886, var síðan málaflutningsmaður í Reykja-
vík árin 1887—89 og landshöfðingjaritari 1889—95. Því
næst varð hann sýslumaður í Isafjarðarsýslu og bæjarfógeti
á Isafirði 1895—1904, en þá varð hann fyrsti ráðherra með
búsetu á Islandi til 1909 og aftur 1912—14. Bankastjóri Is-
landsbanka var hann 1909—12 og aftur eftir 1914. Hann átti
sæti á Alþingi 1901 og 1903—-17, en varð þá að láta af þing-
mennsku sökum heilsuhnekkis. Hann andaðist í Reykjavík
13. desember 1922.
I ritum skólapilta eru til nokkrar ritsmíðar eftir Hannes
í lausu máli. Fyrst er þar Dálítill draumur,2) þar sem skóla-
bækurnar bregðast í líki höfunda sinna, flögra um eina
kennslustofuna og talast við. Næst er svo önnur draumsaga,
sem ber heitið Draumur.3) Þar hregður Hannes ljósi gaman-
seminnar yfir ýmislegt, sem skólabræður hans hafði hent.
1) Aðalbók fél. Ingólfs III (1880—81), Lbs. 3338, 4to, 203.—52. dálkur.
2) Rit Bandamf. II (1876—77), Lbs. 3326, 4to, 323,—330. bls.
3) Sama III (1877—78), Lbs. 3327, 4to, 147,—50. bls.